Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Áslaug Arna hættir á Alþingi

Read Full Article →

Innlent | mbl | 3.6.2026 | 11:05 Áslaug Arna hættir á Alþingi Áslaug Arna kvaddi þingheim í dag. mbl.is/Karítas Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir greindi Alþingi frá því rétt í þessu að hún hefði ákveðið að láta af þingmennsku. Þetta kom fram í ræðu hennar um störf þingsins, en hún tók sæti á Alþingi í morgun eftir að hafa verið í leyfi í tæpt ár. Ekki kom fram í ræðunni hvað hún hygðist taka sér fyrir hendur, þótt Áslaug Arna léti þess getið að með því að hleypa heimdraganum hefði hún áttað sig á því að reynsla sín kynni að nýtast á öðrum vettvangi. Eftir sem áður gaf hún sterklega til kynna að hún hefði ekki að fullu sagt skilið við afskipti af þjóðmálum: „Ég kveð Alþingi, en ég kveð ekki hugsjónirnar. Ég kveð þingmennsku, en ekki viljann til að leggja mitt af mörkum.“ Stjórnmálin ekki ævistarf Í ræðu sinni rifjaði Áslaug Arna upp að árið 2015 hefði hún 24 ára gömul sagt í blaðaviðtali að þingmennskan væri ekki upphaf og endir alls. Hún hefði sagt að „Alþingi ætti að vera eftirsóknaverður staður til að starfa á í nokkur ár, en síðan á maður að geta farið annað. Við eigum að hætta að horfa á stjórnmál sem ævistarf.“ Ári síðar hefði hún verið kjörin á þing og nú væru liðin tíu ár. „Ég hef gefið stjórnmálunum öll mín fullorðinsár. Ég hef fengið þann heiður að vera þingmaður Reykvíkinga, sitja í forystu Sjálfstæðisflokksins, gegna embætti dómsmálaráðherra og síðar háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,“ sagði hún, en nú væri komið að kaflaskilum í lífi hennar. „Ég hef ákveðið að láta af þingmennsku. Ég geri það með þakklæti í hjarta og trú á framtíðina.“ Áslaug Arna tilkynnti í ræðustól þingsins að hún hygðist láta af þingmennsku. mbl.is/Karítas Tíu ár á Alþingi og ráðherra 28 ára Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir var fyrst kjörin á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavíkurkjördæmi norður árið 2016, en hefur verið þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður frá 2021. Hún var 28 ára gömul skipuð dómsmálaráðherra 2019–2021, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 2021–2022 og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 2022–2024. Hún er 35 ára gömul og lögfræðingur að mennt, en í fyrra fór hún í tæplega árs leyfi af þingi til þess að setjast á skólabekk í Columbia-háskóla í New York-borg, þar sem hún lagði stund á alþjóðlegt leiðtoganám í opinberri stjórnsýslu (MPA). Hún útskrifaðist þaðan fyrir tæpum tveimur vikum. Áslaug þekktist boðið um nám í Columbia-háskóla eftir að hafa lotið í lægra haldi í formannskjöri á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í mars 2025 með naumasta mun, en Guðrún Hafsteinsdóttir varð hlutskarpari. Kveðjuræða Áslaugar Örnu á Alþingi Virðulegi forseti. Það er gott að vera komin heim. Á Alþingi þar sem leikreglur samfélagsins eru settar. Þar sem við spyrjum hvernig við gerum betur fyrir fólkið okkar. Tryggjum öryggi, frelsi og farsæld í landi sem er fullt af tækifærum, auðlindum og mannauði. Það er ekki sjálfsagt að fá tækifæri til þess. Nýverið fóru fram glæsilegar sveitarstjórnarkosningar þar sem Sjálfstæðisflokkurinn vann sterka sigra um allt land. Það gerðist ekki af tilviljun heldur vegna þess að hugmyndafræðin um frelsi, ábyrgð, framtak og trú á einstaklinginn á enn sterkt erindi. Sú hugmyndafræði höfðaði líka til mín þegar ég var yngri. Hún kveikti neista og hún kallaði mig til verka. Árið 2015, þá 24 ára gömul, fór ég í viðtal um að stjórnmálin þyrftu að vera opnari fyrir ungu fólki og nýjum hugmyndum. Ég sagði þá, orðrétt: „Alþingi ætti að vera eftirsóknaverður staður til að starfa á í nokkur ár, en síðan á maður að geta farið annað. Við eigum að hætta að horfa á stjórnmál sem ævistarf.“ Ári síðar var ég kjörin á þing. Og nú eru liðin tíu ár. Ég hef gefið stjórnmálunum öll mín fullorðinsár. Ég hef fengið þann heiður að vera þingmaður Reykvíkinga, sitja í forystu Sjálfstæðisflokksins, gegna embætti dómsmálaráðherra og síðar háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Ég hef gefið mig alla í verkefnin. Lært, þroskast og fengið að kynnast fólki um land allt. Ég hef séð styrkinn í íslensku þjóðinni. Séð hvað gerist þegar frelsi, ábyrgð og tækifæri fara saman. Og með því að fara frá Íslandi um tíma áttaði ég mig líka á öðru: að reynslan sem ég hef öðlast hér inni getur líka nýst á öðrum vettvangi. Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi. Ég hef ákveðið að láta af þingmennsku. Ég geri það með þakklæti í hjarta og trú á framtíðina. Ég kveð Alþingi, en ég kveð ekki hugsjónirnar. Ég kveð þingmennsku, en ekki viljann til að leggja mitt af mörkum. Ég óska þingheimi góðs gengis í ykkar mikilvægu störfum og frá mínum dýpstu hjartarótum þakka ég ykkur öllum, samstarfsfólki og starfsfólki Alþingis, fyrir samfylgdina. Takk fyrir mig. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þórunn klökknaði er hún kvaddi Áslaugu Missir af HM eftir áfall Boðar flugmenn og Icelandair til fundar Áslaug Arna hættir á Alþingi Innbrotið náðist á myndband Umræðan 200 mílurnar mótuðu hagsæld þjóðarinnar Með 5% hlutdeild í einum alþingismanni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hegðunar- og agavandamál áberandi Stefna að upptöku evru „Skelfilega erfið mál“ Beint: Fyrsti fundur nýrrar borgarstjórnar Mest lesið Í gær Í vikunni Íslendings saknað á Taílandi Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Fara í vegagerð vegna sólmyrkvans Íslendingar í sérstakri stöðu en glata forskotinu Erfitt að glíma við ytri áföll Gáfust upp á að leggja próf fyrir nemendur Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Stefna að upptöku evru „Skelfilega erfið mál“ Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Andlát: Margrét Jónsdóttir Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Nýjast á mbl.is » Þórunn klökknaði er hún kvaddi Áslaugu Missir af HM eftir áfall Boðar flugmenn og Icelandair til fundar Áslaug Arna hættir á Alþingi Innbrotið náðist á myndband Umræðan 200 mílurnar mótuðu hagsæld þjóðarinnar Með 5% hlutdeild í einum alþingismanni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tuttugu ára tilmæli til ráðuneytisins enn í gildi Ásgeir: Skrýtin nálgun í pappírnum Meiri svartsýni í fréttum en raunveruleikinn sýnir Beint: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Mest lesið Í gær Í vikunni Íslendings saknað á Taílandi Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Fara í vegagerð vegna sólmyrkvans Íslendingar í sérstakri stöðu en glata forskotinu Erfitt að glíma við ytri áföll Gáfust upp á að leggja próf fyrir nemendur Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Stefna að upptöku evru „Skelfilega erfið mál“ Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Andlát: Margrét Jónsdóttir Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Fangi á Hólmsheiði lést í nótt

Share this article