Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Áslaug Arna hættir á þingi

Read Full Article →

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hættir á Alþingi. Þetta tilkynnti hún í ræðu sinni á Alþingi rétt í þessu, en hún sneri aftur á þing í dag eftir leyfi. Hún hefur setið á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá árinu 2016 og er í hópi reynslumestu þingmanna flokksins. Í ræðunni vitnaði hún í 11 ára gamalt viðtal þar sem hún sagði að Alþingi ætti að vera eftirsóknarverður staður til að starfa á í nokkur ár, en að síðan ætti fólk að geta farið annað og að ekki ætti að horfa á stjórnmál sem ævistarf. „Ári síðar var ég kjörin á þing. Og nú eru liðin tíu ár,“ sagði Áslaug Arna. Áslaug Arna sagðist hafa gefið sig alla í verkefnin sem þingmaður og ráðherra, en að með því að fara frá Íslandi hefði hún áttað sig á því að reynslan sem hún hefur öðlast á þingi geti líka nýst á öðrum vettvangi. „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi. Ég hef ákveðið að láta af þingmennsku. Ég geri það með þakklæti í hjarta og trú á framtíðina. Ég kveð Alþingi, en ég kveð ekki hugsjónirnar. Ég kveð þingmennsku, en ekki viljann til að leggja mitt af mörkum.“ Áslaug Arna er þriðji þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem einnig var ráðherra í síðustu ríkisstjórn, til að láta af þingstörfum. Bjarni Benediktsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir eru bæði hætt.

Share this article