Innlent | mbl | 3.6.2026 | 23:30 Vill að höfnin verði bætt hraðar Eyþór Harðarson, oddviti sjálfstæðismanna í Eyjum, er ekki parsáttur við svör Eyjólfs Ármannssonar ráðherra. Samsett mynd/mbl.is/Óskar Pétur Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Landeyjahöfn Vestmannaeyjabær mæti afgangi Vonbrigði með svör ráðherra: „Óboðlegar aðstæður“ Ekki hlutverk ríkisins að bæta Eyjamönnum tjónið Nauðsynlegt að móta heildstæða áætlun Beint: Eyjólfur situr fyrir svörum » Fleiri tengdar fréttir Oddviti sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum telur að vinna þurfi hraðar að því að bæta Landeyjahöfn svo hún geti nýst til siglinga til Heimaeyjar allan ársins hring. Fundur fór fram í Höllinni í Vestmannaeyjum í gær þar sem Vegagerðin og Vestmannaeyjabær fóru yfir stöðu hafnarinnar. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra var viðstaddur og svaraði spurningum bæjarbúa. 500 manns mættu á fundinn. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, sagði í samtali við mbl.is í gær að þungt hljóð hefði verið í gestum fundarins. Frétt af mbl.is „Við getum ekki annan svona vetur“ Skaffar nóg í ríkiskassann Meðal þess sem innviðaráðherra kynnti á fundinum voru breytingar á Landeyjahöfn sem ættu að gera höfninni kleift að vera starfrækt allt árið um kring. „Menn teikna nú upp plan um að þetta gæti tekið allavega fjögur ár, það þurfi að fara í umhverfismat og svoleiðis fyrst. Loksins þegar það eru komnar tillögur til að vinna með láta menn eins og það þurfi að rannsaka hvort það sé leyfilegt. Þetta er algjörlega galið,“ segir Eyþór Harðarson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjabæ. Eyþór telur brýnt að stjórnvöld grípi inn í sem fyrst og leysi málið. „Vestmannaeyjar eru þannig staður að atvinnulífið hér skaffar algjörlega nóg í ríkiskassann til að réttlæta það að samgöngur hér séu í lagi.“ Frétt af mbl.is Vestmannaeyjabær mæti afgangi Kröfur Eyjamanna skýrar Svör Eyjólfs innviðaráðherra voru að mati Eyþórs ekki nægilega skýr á fundinum. „Það vantaði aðeins á skýr svör. Það er eins í þessari umræðu og öðrum að menn fría sig ábyrgð hægri vinstri. Hann talar um að hann sé getulaus gagnvart því að hafa ekki fjármagn fyrir því sem við erum að biðja um. Menn benda hver á annan og það vantar algjörlega forystu í þessum málum.“ Kröfur Eyjamanna í samgöngumálum eru skýrar. „Við erum að sækjast eftir því að höfnin verði heilsárshöfn eins og lagt var upp með þegar hún var opnuð árið 2010. Menn vissu að það yrðu frátafir einn og einn dag en að þetta yrði lokuð höfn þrjá til fjóra mánuði á ári var ekki það sem lagt var upp með. Það var smíðað skip sem var hannað fyrir Landeyjahöfn en það þarf svo að sinna Þorlákshafnarleiðinni allt of stóran hluta ársins. Þegar maður byrjar á einhverju þá þarf maður að klára það,“ segir Eyþór. Tengdar fréttir Landeyjahöfn Vestmannaeyjabær mæti afgangi Vonbrigði með svör ráðherra: „Óboðlegar aðstæður“ Ekki hlutverk ríkisins að bæta Eyjamönnum tjónið Nauðsynlegt að móta heildstæða áætlun Beint: Eyjólfur situr fyrir svörum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Vill að höfnin verði bætt hraðar Segir stjórnvöld hafa sagt ósatt um skýrsluna Gríðarlega krefjandi að sjá um Schumacher SpaceX stefnir á að safna 9.200 milljörðum „Þetta er ekki forseti sem sefur“ Umræðan 200 mílurnar mótuðu hagsæld þjóðarinnar Með 5% hlutdeild í einum alþingismanni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ásgeir: Skrýtin nálgun í pappírnum Hegðunar- og agavandamál áberandi Ráðherrar tjá sig ekki um kjaradeiluna Hefur greinilega farið úrskeiðis löngu áður Mest lesið Í gær Í vikunni Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Stefna að upptöku evru „Skelfilega erfið mál“ Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Andlát: Margrét Jónsdóttir Áslaug Arna hættir á Alþingi Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Vill að höfnin verði bætt hraðar Segir stjórnvöld hafa sagt ósatt um skýrsluna Gríðarlega krefjandi að sjá um Schumacher SpaceX stefnir á að safna 9.200 milljörðum „Þetta er ekki forseti sem sefur“ Umræðan 200 mílurnar mótuðu hagsæld þjóðarinnar Með 5% hlutdeild í einum alþingismanni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ásgeir: „Sjaldan verið meiri óvissa“ Íslenski fáninn dreginn að húni við Ráðhúsið Hefur greinilega farið úrskeiðis löngu áður „Þó að einn fótboltaleikur sé búinn þá byrjar annar“ Mest lesið Í gær Í vikunni Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Stefna að upptöku evru „Skelfilega erfið mál“ Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Andlát: Margrét Jónsdóttir Áslaug Arna hættir á Alþingi Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað