Innlent | Morgunblaðið | 4.6.2026 | 10:16 Friðuðu húsi verður ekki breytt Lítið og sjarmerandi hús sem er umkringt stórhýsum á þrjá vegu. Ekki fékkst leyfi til breytinga. mbl.is/sisi Sigtryggur Sigtryggsson [email protected] Setja bókamerki Ekki fékkst leyfi til breytinga á litlu og krúttlegu húsi í miðborginni, Laugavegi 28a. Þetta er bakhús sem snýr að Grettisgötu. Það var niðurstaða skipulagsfulltrúa Reykjavíkur að engin heimild væri fyrir stækkun eða hækkun hússins í gildandi deiliskipulagi. Félagið Aurora ehf. sendi Reykjavíkurborg fyrirspurn þessa efnis. Óskað er eftir afstöðu skipulagsfulltrúa um hvort hækka megi húsið um eina hæð, lyfta þakinu og dýpka húskropp á jarðhæð. Teikning fylgdi með. Húsið á lóð númer 28a við Laugaveg er einlyft timburhús með risi á hlöðnum steinkjallara, reist árið 1901. Það telst því aldursfriðað. Gömul hús njóta friðunar Hús sem reist eru 1923 eða fyrr njóta friðunar vegna aldurs samkvæmt lögum um menningarminjar. Í því felst að óheimilt er að raska húsinu, spilla því eða breyta, rífa eða flytja úr stað, nema með leyfi Minjastofnunar Íslands. Fram kemur í umsögn verkefnastjóra skipulagsfulltrúa að húsið á Laugavegi 28a sé gamalt, lágreist hús á fínlegum mælikvarða og sé umkringt mun hærri húsum. Þau hæstu eru verslunarhús sem standa við Laugaveginn. Hið þekkta veitingahús Sumac er á jarðhæð hússins Laugavegur 28. Á Laugavegi 26 er Verslunarhöllin. Húsið sker sig úr hvað varðar fínleika, aldur og hversu upprunalegt það er þrátt fyrir nokkrar breytingar á því. Í gildi er deiliskipulag fyrir Reit 1.172.2, Laugaveg, Frakkastíg, Grettisgötu og Klapparstíg, samþykkt í borgarráði 25. mars 2003 ásamt síðari breytingum. Laugavegur telst aðalverslunargata en þrjár síðasttöldu teljast hliðarverslunargötur. Raunar hefur Laugavegur um árabil verið talinn helsta verslunargata Reykjavíkur. Engar heimildir eru fyrir hækkun eða stækkun hússins í gildandi skipulagsáætlunum, segir verkefnastjórinn. Hann minnir á að árið 2016 var send fyrirspurn þess efnis hvort heimilt væri að stækka og hækka húsið Laugavegur 28a. Niðurstaðan í því erindi var: „Neikvætt að breyta deiliskipulagi samanber umsögn hér að ofan.“ Engin breyting hafi verið gerð á deiliskipulagi eða lagaumhverfi sem breyti þessari afstöðu. Minniháttar breytingar Verkefnastjórinn bendir á að aðeins sé heimilt að gera minniháttar breytingar og lagfæringar á húsum, s.s. á svölum, kvisti, skyggni, án þess að koma þurfi til breytingar á deiliskipulagi, enda séu breytingarnar í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar og þróunaráætlun miðborgar Reykjavíkur. Einnig er bent á að á gafli aðliggjandi húss er gluggi og því er ekki hægt að hækka húsið vegna hans. Elstu teikningar sem finnast af húsinu eru frá árinu 1965 og glugginn er teiknaður þar. Því sé ekki hægt að fallast á hækkun húss. Húsið Laugavegur 28a er 137 fermetrar að stærð að meðtöldum kjallara. Í því eru sjö herbergi. Þar hefur að undanförnu verið rekið gistiheimili, Grettir guesthouse. Fyrr á þessu ári var húsið auglýst til sölu. Sú auglýsing var í skamma hríð á fasteignavefjum en hún var síðan fjarlægð. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Segir Musk reyna að magna upp sundrungu Rappari mætir á Iceland Noir „Græðir ekkert á því að mjólka dauða belju“ Friðuðu húsi verður ekki breytt Laus frá Val og á leið í Víking Umræðan Evran er ekki töfralausn Engan afslátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hundrað skjálftar mælst við Þórisjökul „Eins og alheimurinn hafi ákveðið þetta fyrir okkur“ Friðuðu húsi verður ekki breytt Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Mest lesið Í gær Í vikunni SS hyggst hætta halal-slátrunum Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Andlát: Ragna Ragnars Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu Stærstu skjálftar síðan 2008 Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Tekist á um skipun bæjarstjóra í Eyjum Segir stjórnvöld hafa sagt ósatt um skýrsluna Hundrað skjálftar mælst við Þórisjökul Minnast Jörundar Hilmarssonar með ráðstefnu Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Nýjast á mbl.is » Segir Musk reyna að magna upp sundrungu Rappari mætir á Iceland Noir „Græðir ekkert á því að mjólka dauða belju“ Friðuðu húsi verður ekki breytt Laus frá Val og á leið í Víking Umræðan Evran er ekki töfralausn Engan afslátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslenski fáninn dreginn að húni við Ráðhúsið Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak „Þó að einn fótboltaleikur sé búinn þá byrjar annar“ Mest lesið Í gær Í vikunni SS hyggst hætta halal-slátrunum Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Andlát: Ragna Ragnars Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu Stærstu skjálftar síðan 2008 Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Tekist á um skipun bæjarstjóra í Eyjum Segir stjórnvöld hafa sagt ósatt um skýrsluna Hundrað skjálftar mælst við Þórisjökul Minnast Jörundar Hilmarssonar með ráðstefnu Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Fangi á Hólmsheiði lést í nótt