Innlent | Morgunblaðið | 21.5.2026 | 12:44 Ekki fékkst leyfi fyrir veitingahúsi Eitt glæsilegasta hús borgarinnar. Það hefur verið algerlega endurnýjað á undanförnum árum. mbl.is/Eggert Sigtryggur Sigtryggsson [email protected] Setja bókamerki Ekki fæst leyfi til að hefja veitingarekstur í húsinu Laugavegur 31, Kirkjuhúsinu svokallaða. Þetta er eitt glæsilegasta hús borgarinnar og var það nýlega auglýst til sölu. Húsið er tæpir 1.500 fermetrar að stærð. Marteinn Einarsson byggði húsið fyrir verslun sína á árunum 1928-30. Það hýsti þjóðkirkjuna og biskupsembættið í nær þrjá áratugi. Nú er verslun Rammagerðarinnar á jarðhæðinni. Á fundi skipulagsfulltrúa Reykjavíkur 12. maí sl. var lögð fram fyrirspurn Fyrirtækjasölunnar Suðurvers ehf. um rekstur veitingastaðar í flokki 2 á jarðhæð og efri hæð hússins á Laugavegi 31 ásamt stuðningsrýmum í kjallara. Í fyrrnefndum flokki eru umfangslitlir áfengisveitingastaðir þar sem starfsemin er ekki til þess fallin að valda ónæði í nágrenninu svo sem með háværri tónlist og staðir sem kalla ekki á mikið eftirlit og/eða löggæslu. Í fyrirspurninni er bent á að veitingahúsið Sólon í Bankastræti hafi hætt starfsemi í fyrra og tilkynnt hafi verið að verslun verði opnuð í rýminu. Er óskað eftir því að skipulagsfulltrúi taki tillit til breyttrar starfsemi í húsnæðisins í Bankastræti við útreikning á hlutfalli smásöluverslunar/veitingahúss í umsögn sinni. Lífleg verslunargata Fram kemur í umsögn verkefnastjóra skipulagsfulltrúa um fyrirspurnina að samkvæmt Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 tilheyrir lóðin og byggingin á Laugavegi 31 borgarhluta 2 Miðborg og er hluti af miðborgarkjarna, M1a. Í miðborgarkjarnanum má finna lykilstofnanir stjórnsýslu, menningar og mennta, líflegustu verslunargötur landsins og litríka flóru veitingastaða auk fjölbreyttrar sérfræðiþjónustu. Sérstök áhersla er á smásöluverslun auk veitingastarfsemi og afþreyingu sem og þjónustu lykilstofnana stjórnsýslu, menningar og mennta. Á jarðhæðum er verslunar-, veitinga- og menningar-, félags- og þjónustustarfsemi opin almenningi í forgangi, en á efri hæðum skrifstofu- og íbúðarhúsnæði auk gistiþjónustu. Til þess að efla smásöluverslun staðbundið í miðborgarkjarnanum og stuðla að fjölbreyttri starfsemi og lifandi almenningsrýmum séu ákvæði um útlit og starfsemi við götuhliðar í miðborgarkjarna. Á svæði M1a má ekki breyta núverandi húsnæði, s.s. skrifstofuhúsnæði, íbúðum eða verslunarhúsnæði, í gististarfsemi. Mögulegt sé þó að skilgreina gististarfsemi sem ákveðið hlutfall starfsemi nýrrar uppbyggingar, að undangenginni deiliskipulagsgerð. Þ.e. svo lengi sem hún skerðir ekki gæði, stærð eða magn núverandi húsnæðis, s.s. skrifstofurýma, íbúða eða verslunarhúsnæðis, sem fyrir er. „Húsið við Laugaveg 31 er á svæði þar sem gilda sérstök ákvæði um götuhliðar í miðborginni. Laugavegur 31 er á aðalverslunarsvæði 8 þar sem lágmarkshlutfall smásöluverslunar á að vera 70%. Í dag er hlutfall smásöluverslunar við aðalverslunarsvæði átta 64% og því ekki hægt að fallast á breytta notkun húsnæðisins þar sem 70% lágmarki hefur ekki verið náð,“ segir verkefnastjórinn m.a. í umsögn sinni. Niðurstaða skipulagsfulltrúa: Neikvætt tekið í erindið, samræmist ekki aðalskipulagi. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ekki fékkst leyfi fyrir veitingahúsi Bílasalar í sæti lögreglumanns Aldrei liðið jafn vel á Íslandi Hildur Björnsdóttir lét Einar grípa sig Gott samstarf við lögreglu sjaldséð Umræðan Er stórútgerðin að eignast Ísland? Takk fyrir traustið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki efnahagsstefna heldur fullkomin uppgjöf Nýr meirihluti á Akureyri Bílasalar í sæti lögreglumanns Líkur á því að kjarasamningar bresti tvöfaldast Mest lesið Í gær Í vikunni Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Skatturinn birtir álagningu í dag „Mjög margir hringdu í 112“ Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Eigendur snekkjunnar stefna ríkinu og Gæslunni Margir prestar óska nafnleyndar Hafna kvörtunum vegna ÁTVR Hvati til að draga úr framlagi sínu Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Klemmdist undir rútu Fær 10 milljónir í bætur Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Enginn mætti frá ríkisstjórninni Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Nýjast á mbl.is » Ekki fékkst leyfi fyrir veitingahúsi Bílasalar í sæti lögreglumanns Aldrei liðið jafn vel á Íslandi Hildur Björnsdóttir lét Einar grípa sig Gott samstarf við lögreglu sjaldséð Umræðan Er stórútgerðin að eignast Ísland? Takk fyrir traustið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nauðsynlegt að samræma störf slökkviliða Hildur: Gagnlegt samtal Bílasalar í sæti lögreglumanns Vill að nefndin fjalli um löggjöfina gullhúðuðu Mest lesið Í gær Í vikunni Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Skatturinn birtir álagningu í dag „Mjög margir hringdu í 112“ Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Eigendur snekkjunnar stefna ríkinu og Gæslunni Margir prestar óska nafnleyndar Hafna kvörtunum vegna ÁTVR Hvati til að draga úr framlagi sínu Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Klemmdist undir rútu Fær 10 milljónir í bætur Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Enginn mætti frá ríkisstjórninni Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð