Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kjálka­nes kaupir 14% í Sjóböðunum fyrir 70 milljónir

Read Full Article →

Fjárfestingarfélagið Kjálkanes hefur náð samkomulagi um kaup á 13,79% hlut í Sjóböðum ehf., sem rekur GeoSea sjóböðin á Húsavík, af Orkuveitu Húsavíkur fyrir 70,5 milljónir króna. Sjóböðin voru metin á 511 milljónir króna í viðskiptunum. Orkuveita Húsavíkur (OH), sem hefur verið hluthafi í Sjóböðum frá upphafi, greinir frá sölunni á heimasíðu sinni og segir að ákvörðunin hafi verið tekin á stjórnarfundi fyrirtækisins þann 18. maí 2026, eftir að tilboð barst frá Kjálkanesi ehf. OH samþykkti tilboð Kjálkaness, sem er systurfélag útgerðarfélagsins Gjögurs á Grenivík, með fyrirvara um forkaupsrétt annarra hluthafa. „Stjórn Sjóbaða og aðrir hluthafar félagsins fara nú yfir tilboðið og mun skýrast á næstunni hvort þeir hyggist nýta forkaupsrétt sinn.“ Stjórn OH samþykkti í nóvember 2025 að hefja könnun á mögulegri sölu á hlut félagsins í Sjóböðum. Framkvæmdir við sjóböðin hófust árið 2017 og voru þau formlega opnuð í september 2018. Fyrirtækið velti 375 milljónum króna og hagnaðist um 48,8 milljónir króna árið 2025. Eignir félagsins námu 726 milljónum króna í árslok 2025 og eigið fé var 391 milljón króna. Fjárfestingarsjóðurinn Norðurböð, sem er í 37% eigu Kjálkaness, er stærsti hluthafi Sjóbaða með 34,7% hlut. Dánarbú Péturs Stefánssonar útgerðarmanns er næst stærsti hluthafi Sjóbaðanna með 29% hlut.

Share this article