Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gjögur og Kjálkanes hagnast um 3,6 milljarða

Read Full Article →

Fjárfestingafélagið Kjálkanes hagnaðist um 2.391 milljón króna árið 2025, samanborið við 1.817 milljónir króna árið áður. Fjárfestingartekjur og gjöld námu ríflega 2.570 milljónum króna og jukust um 630 milljónir milli ára. Áhrif hlutdeildarfélaga voru jákvæð um 1,4 milljarða króna, samanborið við 1,1 milljarð árið áður. Fjárfestingartekjur umfram gjöld námu 1,1 milljarði samanborið við 766 milljónir árið áður. Systkinin Anna Guðmundsdóttir og Ingi Guðmundsson eru stærstu eigendur félagsins og eiga hvort um sig rúmlega 22% hlut. Eignir Kjálkaness námu 31,9 milljörðum króna í árslok, samanborið við 30,7 milljarða árið áður. Bókfært eigið fé nam 31,8 milljörðum króna og skuldir rúmum 100 milljónum. Stjórn félagsins leggur til að allt að 1,5 milljarðar króna verði greiddir í arð. Gjögur, útgerðarfélag í eigu sömu aðila, hagnaðist um 1.240 milljónir króna árið 2025 en hagnaðurinn nam 194 milljónum árið áður. Tekjur af seldum afla jukust um rúma tvo milljarða milli ára og námu 7,7 milljörðum króna. Í skýrslu stjórnar segir að aukningu tekna og afkomu megi rekja til hærra afurðaverðs á mikilvægum botnfisktegundum auk makríls. Eignir Gjögurs námu 21,5 milljörðum króna í árslok, skuldir 13 milljörðum og eigið fé 8,5 milljörðum króna. Félagið á fiskveiðiheimildir sem bókfærðar eru á rúma 10 milljarða króna. Stjórn Gjögurs leggur til að enginn arður verði greiddur. Samanlagður hagnaður Kjálkaness og Gjögurs nam um 3,6 milljörðum króna á árinu. Ingi Guðmundsson er framkvæmdastjóri beggja félaga. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article