Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Enn langt frá nákvæmni í eldgosaspám

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 6.6.2026 | 9:22 Enn langt frá nákvæmni í eldgosaspám Magnús segir ekki hafa tekist að sjá fyrir öskjusig. Morgunblaðið/Karítas Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Þrátt fyrir miklar framfarir í vöktun eldfjalla síðustu áratugi eru vísindamenn enn langt frá því að geta sagt til um með mikilli nákvæmni hvenær eldgos kunni að hefjast, hversu stór þau verða eða hversu lengi þau kunna að standa yfir. Þetta kemur fram í nýrri grein í hinu virta vísindatímariti Science. Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, leiddi vinnuna við skrif greinarinnar en hana skrifaði hann með Christopher J. Bean, doktor í jarðskjálftafræði við Dublin Institute for Advanced Studies. Magnús segir gríðarlegar framfarir hafa orðið í þessum efnum á síðustu áratugum. Ef aðeins er horft til Íslands hafi langflest gos sem urðu fyrir 50 árum eða fyrr komið að óvörum en vegna jarðskjálftavöktunar sjáist forboðarnir oft í dag. Það eina sem vísindamenn geti notað til þess að meta hversu stórt gos verði séu líkurnar á því að gosið verði svipað og áður í sams konar eldfjalli. „Stundum verða óvenjulegir og miklu stærri atburðir. Þá hefur ekki tekist að sjá fyrir,“ segir Magnús og nefnir sérstaklega þegar verði öskjusig. „Öskjugosið 1875 er dæmi um þetta en þá voru náttúrlega engar mælingar byrjaðar.“ Þá segir hann Bárðarbungugosið 2014-15 eða gosið í Holuhrauni hafa verið mikinn gliðnunaratburð en ekki hafi verið hægt að sjá fyrir að þar færi af stað öskjusig. „Það uppgötvaðist eftir að allt var farið af stað og var ástæðan fyrir því að við fengum þarna miklu stærra gos en kannski algengast er.“ Til þess að öskjusig geti orðið verður að vera nokkuð stórt kvikuhólf undir eldstöðinni, útskýrir Magnús, og það sé nokkuð sem t.a.m. fyrirfinnist ekki á Reykjanesskaga. Hins vegar séu stóru megineldstöðvarnar; Bárðarbunga, Grímsvötn, Askja og Katla, allt stórar öskjur. Þar geti orðið öskjusig og hafi orðið. Tekur Magnús dæmi um stóra sprengigosið í Öræfajökli 1362 en þá hafi væntanlega orðið öskjusig. Hættulegustu atburðirnir „Þetta eru kannski atburðirnir sem geta verið hvað hættulegastir, þessir stóru atburðir sem eru mjög sjaldgæfir. Það hefur ekki tekist að sjá slíkt fyrir fram að þessu og við erum komin frekar skammt á veg með að átta okkur á því,“ segir Magnús en bætir við að þegar slíkur atburður sé nýorðinn séu engar líkur á að annar komi strax í kjölfarið þar sem fjallið hafi breyst. Það geti þó þróast aftur á töluverðum tíma. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Enn langt frá nákvæmni í eldgosaspám „Ég man bara að ég byrjaði að gráta“ Lúxusgolfferð til Króatíu Tólf ennþá í brautinni af 25 sem ræstu í 106 km Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Umræðan Agi og agaleysi Þjóðaratkvæði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Um 300 þegar fengið viðvörun Birtingarmynd miklu stærri vanda Minna fé og færri styrkir þrátt fyrir aukin gæði „Grundvallaratriði fyrir íslenska þjóð“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ástæða til að hafa áhyggjur Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Vindorka eykur flutningskostnað Ásta verður áfram sveitarstjóri Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Miklar breytingar á forystusveitinni Búa sig undir mikið álag á símkerfi Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Um 300 þegar fengið viðvörun Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Andlát: Þórir Lárusson Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Ekki frá höfundum komið Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Enn langt frá nákvæmni í eldgosaspám „Ég man bara að ég byrjaði að gráta“ Lúxusgolfferð til Króatíu Tólf ennþá í brautinni af 25 sem ræstu í 106 km Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Umræðan Agi og agaleysi Þjóðaratkvæði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Minna fé og færri styrkir þrátt fyrir aukin gæði Sakborningur sendi yfirlýsingu vegna umfjöllunar Brunakerfi stúdentagarða í gang við sturtuferðir Fjárlög verði ekki hallalaus 2027 Mest lesið Í gær Í vikunni Ástæða til að hafa áhyggjur Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Vindorka eykur flutningskostnað Ásta verður áfram sveitarstjóri Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Miklar breytingar á forystusveitinni Búa sig undir mikið álag á símkerfi Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Um 300 þegar fengið viðvörun Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Andlát: Þórir Lárusson Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Ekki frá höfundum komið Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna

Share this article