Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Stórhýsi Alvotech rísi á Granda

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 6.6.2026 | 18:15 Stórhýsi Alvotech rísi á Granda Á þessari mynd og þeirri næstu má sjá stórhýsi Alvotech frá tveimur sjónarhornum. Á þessari mynd er horft til suðausturs í átt að Gömlu höfninni. Sigtryggur Sigtryggsson [email protected] Setja bókamerki Byggja á stórhýsi undir starfsemi líftæknifyrirtækisins Alvotech við Fiskislóð á Granda. Morgunblaðið sagði fyrst frá þessum áformum í september 2025. Skipulagsfulltrúi tók jákvætt í þessar hugmyndir og kom með ábendingar varðandi frekari vinnu við deiliskipulag lóðanna. Nú eru þessi áform komin á næsta stig og tekið tillit til ábendinganna. Vísaði skipulagsfulltrúinn málinu til umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar til afgreiðslu. Lóðirnar Fiskislóð 33-37 standa á landfyllingu við sjóinn og ná frá bílaþvottastöðinni Löðri að húsi Brimrúnar í jaðri olíubirgðastöðvarinnar. Reiturinn er hluti af Örfirisey þar sem landnotkunin einkennist af hafnsækinni starfsemi, verslun og þjónustu, matsölustöðum og skrifstofum. Flestar bygginganna eru reistar á landfyllingum. Tölvumyndir/Nordic Office of Architecture. Þarna á að rísa pökkunarverksmiðja, vöruhús sem og skrifstofur fyrir Alvotech á Íslandi. Þetta er með síðustu lóðum í Örfirisey sem eru óbyggðar. Í breytingunni sem lögð er til felst að sameina lóðirnar þrjár í eina, Fiskislóð 33-37. Enn fremur að auka nýtingarhlutfall, hækka hámarkshæð upp í 18 metra og færa byggingarreit 10 metra frá suðurlóðarmörkum, samkvæmt uppdrætti arkitektastofunnar Nordic Office of Architecture. Með fyrstu umsókninni í september 2025 fylgdu þrívíddarmyndir af fyrstu drögum að útliti byggingarinnar en stærðartölur komu ekki fram. Þetta er lóðin. Lengst til vinstri glittir í olíutankana og til hægri er hús Forlagsins. mbl.is/sisi Léttur iðnaður Í nýju umsókninni kemur fram að áætlað sé að byggingin verði 12 þúsund fermetrar að stærð. Þar af verði léttur iðnaður á sex þúsund fermetrum, vörugeymslur verði fjögur þúsund fermetrar og skrifstofur tvö þúsund fermetrar. Á nýjum þrívíddarmyndum sést að útliti byggingarinnar hefur verið breytt frá fyrstu hugmyndum. Meðal annars hefur vöruafgreiðsla verið færð. Í minnisblaði arkitektastofunnar kemur fram að aðalmarkmið uppbyggingar Alvotech á Granda sé að koma á fót hátækniaðstöðu sem getur mætt allt að 100% af samsetningarþörf Alvotech (þegar sprautur eru settar í penna eða annan öryggisbúnað). Þá á byggingin að mæta hluta af pökkunarþörf og vöruhúsi fyrir fullbúna vöru. Að auki verði þarna vörugeymsla fyrir hráefni. Byggingin muni uppfylla allar kröfur og viðhalda hæstu gæðastöðlum í geymslu, samsetningu og pökkun til að tryggja gæði vöru. Innleidd verði háþróuð kerfi fyrir birgðastýringu og gæðaeftirlit og allt muni þetta uppfylla reglugerðarkröfur. Mjög mikilvægt sé fyrir Alvotech að tryggja sveigjanleika og stækkunarmöguleika til lengri tíma. Sameining lóða sé nauðsynleg svo byggja megi eina byggingu undir starfsemina. Hækkun hámarkshæðar sé tilkomin vegna sjálfvirkra vöruhúsakerfa sem þörf er á fyrir birgðastýringu og gæðaeftirlit svo hægt sé að uppfylla reglugerðarkröfur GMP og FDA. Þörf fyrir bílakjallara Gert er ráð fyrir að töluverður fjöldi starfi í byggingunni þegar hún er komin í fulla notkun og því sé þörf fyrir bílakjallara svo nýta megi lóðina sem best. Skrifstofuhlutinn verður 2.000 fermetrar og þar gætu allt að 130 manns starfað. Gert er ráð fyrir 58 bílastæðum í kjallara og 15 á yfirborði, samtals 73 í heild. Koma skal fyrir 55 hjólastæðum að lágmarki innan lóðar. Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur var lögð fram umsókn Fiskislóðar 35 ehf. um breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar (Örfiriseyjar). Í breytingunni sem lögð er til felst sameining lóðanna í eina lóð sem fær heitið Fiskislóð 33-37. Borgaryfirvöld samþykktu að auglýsa deiliskipulagið. Almenningur getur kynnt sér það á skipulagsgatt.is. Athugasemdafrestur er til 2. júlí næstkomandi. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Stórhýsi Alvotech rísi á Granda Elvar í undanúrslit eftir sigur gegn Spánarmeisturunum „Ég er ofboðslega sáttur við lífsferilinn“ Viktor Gísli og félagar í úrslit Mafalda Sigmarsson kom fyrst kvenna í mark Umræðan Þjóðaratkvæði Agi og agaleysi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjárlög verði ekki hallalaus 2027 Áhrif á heilann koma seint í ljós Minna fé og færri styrkir þrátt fyrir aukin gæði Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Mest lesið Í gær Í vikunni Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Kaflaskil hjá bardagakind Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Tveir á bráðamóttöku eftir bílveltu á Suðurlandi Vindorka eykur flutningskostnað Segir tillögur fela í sér skerðingar Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Um 300 þegar fengið viðvörun Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Andlát: Þórir Lárusson Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Ekki frá höfundum komið Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Stórhýsi Alvotech rísi á Granda Elvar í undanúrslit eftir sigur gegn Spánarmeisturunum „Ég er ofboðslega sáttur við lífsferilinn“ Viktor Gísli og félagar í úrslit Mafalda Sigmarsson kom fyrst kvenna í mark Umræðan Þjóðaratkvæði Agi og agaleysi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Enn langt frá nákvæmni í eldgosaspám Minna fé og færri styrkir þrátt fyrir aukin gæði Ástæða til að hafa áhyggjur Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Mest lesið Í gær Í vikunni Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Kaflaskil hjá bardagakind Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Tveir á bráðamóttöku eftir bílveltu á Suðurlandi Vindorka eykur flutningskostnað Segir tillögur fela í sér skerðingar Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Um 300 þegar fengið viðvörun Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Andlát: Þórir Lárusson Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Ekki frá höfundum komið Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna

Share this article