Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Alvotech fékk 20,6 milljarða í hlutafjárútboði

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 15 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Al­vot­ech fékk 20,6 millj­arða í hluta­fjár­út­boði Brynjólfur Þór Guðmundsson Fjárfestar keyptu hlutabréf fyrir 20,6 milljarða króna í Alvotech. Hlutafjárútboði fyrirtækisins í Bandaríkjunum lauk í gær og höfðu fjárfestar þá keypt rúmlega 26 milljónir hluta á genginu 3,75 dollarar á hlut. Samhliða því voru gerðir áskriftarsamningar við evrópska fjárfesta sem keyptu tæplega 18 milljón hluti á sama gengi. Höfuðstöðvar Alvotech. Alvotech / Stefán Drengsson Fyrir 55 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Fækka ferðum stræt­is­vagna á lands­byggð­inni Vegagerðin gerir breytingar á fimm leiðum landsbyggðastrætisvagna í sumar og haust. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið End­ur­skoða veru Banda­ríkja­hers í Evrópu Stríðsmálaráðherra Bandaríkjanna ætlar að nota næstu sex mánuði til að endurskoða veru Bandaríkjahers í Evrópu og hvar hann er með herstöðvar. Hann hrósaði sumum NATO-ríkjum fyrir að auka útgjöld til varnarmála en sagði önnur þurfa að taka sig á. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ol­íu­verð lækkar eftir und­ir­rit­un vilja­yf­ir­lýs­ing­ar Brynjólfur Þór Guðmundsson Verð á hráolíu lækkaði um rúm þrjú prósent í morgun og hefur lækkað um meira en fimmtán prósent á einni viku. Fréttir af fyrirhuguðu samkomulagi Írans og Bandaríkjanna og undirritun viljayfirlýsingar í gær hafa orðið til þess að verð á olíu hefur farið lækkandi. Þau tíðindi ættu að greiða fyrir umferð um Hormússund svo hægt sé að flytja olíu og aðrar vörur þar í gegn. Viðbrögð á hlutabréfamörkuðum voru margvísleg. Hlutabréf hækkuðu í Tókýó, Singapúr, Mumbai, Frankfurt og Manilla en lækkuðu í Sjanghaí, Sidney, Wellington, Bangkok, Jakarta og París. Hlutabréfaverð hefur víða glæðst og olíuverð hefur lækkað. EPA / FRANCK ROBICHON Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Fjórða hver íbúð meira en ár á sölu­lista Raunverð íbúða hefur lækkað og lengri tíma tekur að selja þær en áður. Húsaleiga hefur staðið í stað að raunvirði undanfarið ár. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hvess­ir við suð­aust­ur­strönd­ina og á sunn­an­verðu Snæ­fells­nesi Landsmenn mega eiga von á blæstri í dag. Hvassast verður á sunnanverðu Snæfellsnesi og við suðausturströndina þar sem veðrið getur orðið varasamt þeim farartækjum sem taka á sig mikinn vind. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kúba Stjórn­völd reyna að blása lífi í hag­kerf­ið Stjórnvöld á Kúbu kynntu í gær aðgerðapakka sem ætlað er að auka fjárfestingar á eyjunni. Þá ætla stjórnvöld einnig að skera niður og fækka ráðuneytum. Aðgerðunum er ætlað að styrkja hagkerfið sem hefur verið í lamasessi undanfarna mánuði. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Í dag: Halda Mex­í­kó­ar góðu gengi sínu áfram? Í dag hefst önnur umferð riðlakeppninnar á HM karla í fótbolta. Heimamenn í Mexíkó unnu öruggan sigur í fyrsta leik og mæta Suður-Kóreu í Guadalajara. Þrír aðrir leikir eru á dagskrá. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Ús­bekist­an – Kól­umb­ía Kólumbíumenn unnu leikinn og skoruðu þrjú mörk og Úsbekar eitt. Hér er hægt að horfa á bestu augnablik leiksins. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Kól­umb­íu­menn sigr­uðu Úsbeka Kólumbía sigraði Úsbeka örugglega 3-1 í K-riðlinum á HM í fótbolta. Úsbekar áttu þó feikigóða innkomu í sínum fyrsta leik á mótinu með glæsilegu marki Abbosbek Fayzullaev. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Finnland Finnska þingið vill afnema bann við kjarn­orku­vopn­um í land­inu Finnska þingið hefur samþykkt lagabreytingu til að aflétta allsherjarbanni við kjarnorkuvopnum í landinu. Varnarmálaráðherrann segir að lagabreytingin sé til að styrkja varnir Finnlands. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Gana - Panama Gana vann 1-0 sigur gegn Panama í fyrsta leik liðanna á HM karla í fótbolta 2026 í L-riðli. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ástralía Fyrstu beinu flugin milli Sydney og London á næsta ári Ástralska flugfélagið Qantas ætlar að hefja fyrstu beinu flugin milli Sydney og London á næsta ári. Flugleiðin styttist um fjórar klukkustundir og verður um 19 klukkustundir. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Markið eina lét bíða eftir sér Gana vann Panama með einu marki í leik liðanna í L-riðli sem fram fór í Toronto í Kanada í nótt. Markið var skorað í uppbótartíma leiksins. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Nú geta eig­in­leg­ar frið­ar­við­ræð­ur hafist Forsetar Bandaríkjanna og Íran hafa undirritað samkomulag um að hefja friðarviðræður til að binda enda á stríðsátökin í Mið-Austurlöndum. Ríkin skuldbinda sig til að ná lokasamkomulagi um frið innan sextíu daga. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Mað­ur­inn sem þú heyrir í á nótt­unni: „Sól­ar­hring­ur­inn er kominn í hakk“ Gunnar Ormslev hefur borið þungann af lýsingum næturleikja á HM karla í fótbolta. Síðastliðinn sólahring hefur hann lýst fimm leikjum alls. Hvernig fer hann að þessu? Hver er lykillinn að því að halda sér gangandi? 17. júní 2026 kl. 22:37ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Tuchel sýndi ensku þjóð­inni öll svörin Englendingar léku virkilega vel í 4-2 sigri gegn Króatíu í kvöld. Mikið japl, jaml og fuður hefur verið um leikmannaval og taktík Tomas Tuchel í aðdraganda móts. Sigurinn hefði hæglega getað orðið stærri. 17. júní 2026 kl. 22:34ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Eng­land - Króat­ía England vann 4-2 sigur gegn Króatíu í fyrsta leik liðanna á HM karla í fótbolta 2026 í L-riðli. 17. júní 2026 kl. 22:27ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Banda­ríkja­for­seti búinn að skrifa undir samn­ing­inn við Íran Bandaríkjaforseti undirritaði samninginn við Íran í Versölum í kvöld. Bandarískir embættismenn hafa greint frá helstu atriðum sem fram koma í samningi Bandaríkjanna um áframhaldandi vopnahlé við Íran. 17. júní 2026 kl. 22:06INNLENDAR FRÉTTIR Fjarðabyggð Stækk­un Mjó­eyr­ar­hafn­ar lyfti­stöng fyrir sam­fé­lag­ið Til stendur að stækka Mjóeyrarhöfn við Reyðarfjörð. Framkvæmdirnar voru kynntar á íbúafundi í gær. Bæjarstjóri segir umsvif fyrirtækja í grennd við höfnina aukast með stækkuninni. 17. júní 2026 kl. 21:31INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Árborg 37 nýir slökkvi­liðs­menn hjá Bruna­vörn­um Ár­nes­sýslu Þrjátíu og tveir slökkviliðsmenn hjá Brunavörnum Árnessýslu voru útskrifaðir í dag úr grunnnámi slökkviliðsmanna og fimm slökkviliðsmenn voru útskrifaðir úr lengra námi. Í dag eru um 160 slökkviliðsmenn hjá Brunavörnum Árnessýslu. 17. júní 2026 kl. 20:31ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Portú­gal - Lýð­stjórn­ar­lýð­veld­ið Kongó Hér má sjá mörkin úr 1-1 jafntefli Portúgal og Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó á HM í fótbolta. Liðin eru í K riðli. 17. júní 2026 kl. 20:14ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Sögu­legt stig og sögu­legt mark Lýð­stjórn­ar­lýð­veld­is­ins Portúgal og Lýðstjórnarlýðveldið Kongó gerðu 1-1 jafntefli. Er þetta fyrsta stig og fyrsta mark Lýðstjórnarlýðveldis. 17. júní 2026 kl. 20:14INNLENDAR FRÉTTIR Landsbyggðin Fjöl­menn há­tíð­ar­höld víða um land Afmæli lýðveldisins var fagnað víða um land. Á Akureyri hófst dagskráin á Blómabílnum og bílasýningu. Á Egilsstöðum þurfti að bregðast við leiðinlegu veðri. Á Ísafirði var dagskrá með hefðbundnu sniði og Dalvíkingar drógu fram úlpurnar í skrúðgöngu. 17. júní 2026 kl. 19:23ERLENDAR FRÉTTIR Evrópa Allt að 40 stiga hiti víða í Evrópu um helg­ina Öflug hitabylgja gengur yfir stóran hluta Frakklands næstu daga. Hitatölur gætu náð allt að 40 stigum víða, meðal annars á Ítalíu, Spáni og í Portúgal. Yfirvöld hvetja íbúa til að gæta varúðar. 17. júní 2026 kl. 19:21ÍÞRÓTTIR Handbolti Munu Vals­menn leika í Meist­ara­deild­inni? Valsmenn hafa sótt um sæti í Meistaradeild Evrópu í handbolta fyrir karlalið sitt. Evrópsa handknattleikssambandið mun sjá um valið og því á eftir að koma í ljós hvort að Valsmenn leika í deild þeirra bestu. 17. júní 2026 kl. 19:02ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Madueke og Stones byrja Jóhann Páll Ástvaldsson Byrjunarliðin í England - Króatíu eru klár en hann byrjar klukkan 20:00. Noni Madueke byrjar á hægri kanti og John Stones í stað Marc Guehi í hafsent. Þá er enginn Kovacic í byrjunarliði Króata. Madueke fagnar marki fyrir Englendinga. EPA / ANDREJ CUKIC England Markvörður 1 Jordan Pickford Varnarmenn 2 Ezri Konsa 3 Nico O'Reilly 5 John Stones 24 Reece James Miðjumenn 4 Declan Rice 8 Elliot Anderson 10 Jude Bellingham Sóknarmenn 9 Harry Kane (fyrirliði) 18 Anthony Gordon 20 Noni Madueke Króatía Markvörður 1 Dominik Livaković Varnarmenn 2 Josip Stanišić 4 Joško Gvardiol 6 Josip Šutalo 22 Luka Vušković Miðjumenn 10 Luka Modrić (fyrirliði) 15 Mario Pašalić 16 Martin Baturina 17 Petar Sučić Sóknarmenn 14 Ivan Perišić 26 Petar Musa 17. júní 2026 kl. 18:42ERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Trump: „Stór­kost­lega ár­ang­urs­rík­ur G7-fundur“ Leiðtogar G7-ríkjanna hafa náð saman um aukinn hernaðarstuðning við Úkraínu og refsiaðgerðir gegn Rússlandi. Forseti Bandaríkjanna segir leiðtogafundinn í Frakklandi hafa verið vel heppnaðan. 17. júní 2026 kl. 18:22INNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Fjöldi há­laun­aðra rík­is­starfs­manna kom á óvart Á þriðja þúsund ríkisstarfsmenn fá meira en eina og hálfa milljón í mánaðarlaun. Fjármálaráðherra segir hafa komið sér á óvart hve margir þeir eru. 17. júní 2026 kl. 17:22INNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Arn­hild­ur Pálma­dótt­ir borg­ar­lista­mað­ur Reykja­vík­ur Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Arnhildur Pálmadóttir arkitekt var útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2026 á hátíðlegri athöfn í Höfða í dag. Arnhildur hefur vakið athygli fyrir framsæknar hugmyndir í arkitektúr, sérstaklega hvað varðar sjálfbærni, nýtingu auðlinda og framtíð byggingariðnaðarins, og verk hennar snúa oft að hvernig hægt sé að byggja umhverfisvænni borgir og byggingar. Hún hlaut Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs árið 2024 og ári seinna var hún sýningarstjóri íslenska skálans á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr. Borgarlistamaður Reykjavíkur er heiðursviðurkenning einstaklings sem hefur skar

Share this article