Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Al­vot­ech hætt við upp­byggingu á Granda

  • What: Alvotec has abandoned plans to build a facility in Granda and is seeking a new location
  • Impact: Potential changes to the company's operations and local economy
Read Full Article →

Al­vot­ech hefur fallið frá áformum um að reisa um­fangs­mikið húsnæði undir starf­semi félagsins við Fiskislóð á Granda. Félagið hefur þess í stað sótt um nýja lóð í Vatns­mýri, nærri núverandi höfuðstöðvum og fram­leiðslu­stöð Al­vot­ech, sam­kvæmt svörum félagsins við fyrir­spurn Við­skipta­blaðsins. „Al­vot­ech hefur sótt um nýja lóð í Vatns­mýri og telur félagið að upp­bygging við hlið núverandi höfuðstöðva muni henta fyrir­huguðum vexti starf­seminnar best,“ segir Al­vot­ech. „Félagið hefur ekki áform um að byggja á lóðinni á Granda, sem er ekki í eigu Al­vot­ech,“ segir þar enn fremur. Átti að hýsa pökkun og vöru­geymslur Morgun­blaðið greindi frá því í septem­ber síðastliðnum að til stæði að reisa stór­hýsi fyrir Al­vot­ech á lóðunum við Fiskislóð 33, 35 og 37 í Örfiris­ey. Fyrir­hugað var að sam­eina lóðirnar þrjár og reisa þar meðal annars pökkunar- og sam­setningar­verk­smiðju, vöru­hús og skrif­stofur fyrir félagið. Í þar­falýsingu sem fylgdi skipu­lags­vinnunni kom fram að mark­miðið væri að byggja hátækniaðstöðu sem gæti annað allt að 100% af sam­setningarþörf Al­vot­ech. Þar var meðal annars átt við sam­setningu sprauta í lyfja­penna eða annan öryggis­búnað. Í þar­falýsingu sem fylgdi skipu­lags­vinnunni kom fram að mark­miðið væri að byggja hátækniaðstöðu sem gæti annað allt að 100% af sam­setningarþörf Al­vot­ech. Þar var meðal annars átt við sam­setningu sprauta í lyfja­penna eða annan öryggis­búnað. Einnig var gert ráð fyrir að byggingin hýsti hluta af pökkunar­starf­semi félagsins, vöru­geymslur fyrir full­unnar vörur og hráefni, auk skrif­stofu­aðstöðu. Áformin kölluðu á breytingu á deili­skipu­lagi svæðisins. Óskað var eftir því að lóðirnar yrðu sam­einaðar, nýtingar­hlut­fall hækkað og heimilt yrði að reisa allt að 18 metra háa byggingu. Hæðin var meðal annars rökstudd með þörf fyrir sjálf­virk vöru­húsa­kerfi sem upp­fylltu kröfur um birgðastýringu, gæða­eftir­lit og lyfja­fram­leiðslu. Skipu­lags­full­trúi Reykja­víkur tók á sínum tíma jákvætt í að unnið yrði áfram að breytingunni. Til­lagan var síðar aug­lýst og var enn til með­ferðar hjá borginni fyrr í þessum mánuði. Vill byggja við núverandi starf­semi Nú liggur fyrir að Al­vot­ech ætlar ekki að nýta lóðina undir starf­semi sína, þótt skipu­lags­vinnan hafi verið komin nokkuð langt. Félagið telur upp­byggingu í Vatns­mýri betur til þess fallna að styðja við fyrir­hugaðan vöxt. Núverandi höfuðstöðvar og megin­starf­semi Al­vot­ech á Ís­landi eru við Sæ­mundargötu, þar sem félagið rekur meðal annars þróunar- og fram­leiðslu­aðstöðu fyrir líftækni­lyf. Ekki kemur fram í svari Al­vot­ech hversu stórri lóð félagið hefur óskað eftir í Vatns­mýri, hvenær upp­bygging gæti hafist eða hversu um­fangs­mikil hún yrði.

Share this article