200 mílur | mbl | 7.6.2026 | 22:15 Sjómenn heiðraðir um allt land Aríel Pétursson festir heiðursmerki á einn af þeim sjö sjómönnum sem heiðraðir voru í Reykjavík í dag. Ljósmynd/Ernir Eyjólfsson Setja bókamerki Sjómenn voru í dag heiðraðir um allt land í tilefni sjómannadags. Dagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur frá 1938 en auk þess að heiðra sjómenn er þetta einnig dagur til að minnast þeirra sem hafa fórnað lífi sínu á sjó og fagna mikilvægi sjómennskunnar. Í Reykjavík voru sjö sjómenn heiðraðir og kveðst Aríel Pétursson formaður Sjómannadagsráðs hæst ánægður með hátíðarhöldin. „Þetta gekk allt eins og í sögu.“ Hinir sjö fræknu fengu afhenta viðurkenningu við hátíðlega athöfn í Hörpu og voru það þeir; Bergsveinn Þorkelsson, Gestur Helgason, Jón Már Jakobsson, Jón Páll Ásgeirsson, Kristján Sigurbjörnsson, Ólafur Pálsson og Víðir Jónsson. Bergsveinn Þorkelsson, Gestur Helgason, Jón Már Jakobsson, Jón Páll Ásgeirsson, Kristján Sigurbjörnsson, Ólafur Pálsson og Víðir Jónsson. Ljósmynd/Ernir Eyjólfsson Venja er víða um land að leggja blómsveig við minnismerki á sjómannadaginn til að minnast þeirra sjómanna sem hafa týnt lífi sínu á sjónum. Þetta er einn af mikilvægustu liðunum í dagskrá dagsins. Í Reykjavík fór venju samkvæmt fram hátíðleg minningarathöfn við Minningaröldur sjómannadagsins í Fossvogskirkjugarði. Þessi athöfn er helguð minningu þeirra sjómanna og sæfarenda sem hafa farist á hafi úti og ekki fundist eða komist í vígða mold. Að þessu sinni stóð me.a. áhöfn danska varðskipsins Hvítabjörnsins (Videbjörn) þátt. Blómsveigur lagður á minnismerkið Minnigaröldur í Fossvogskirkjugarði. Ljósmynd/Ernir Eyjólfsson Fjöldi sjómanna Mikið var um dýrðir í Snæfellsbæ þar sem að venju fór fram glæsileg sjómannahelgi fram. Á Ólafsvík var Ægir Kristmundsson heiðraður en hann hefur stundað sjómennsku í hátt í 50 ár Á Hellissandi var Reynir Rúnar Reynisson vélstjóri heiðraður fyrir langt og gott starf fyrir sjómennsku Forsvarsmenn sjómanndagsráðs Ólafsvíkur ásamt Ægi Kristmundssyni sem er 4 til vinstri og vi hlið hans er eiginkona Ægis , Árný Bára Friðriksdóttir mbl.is/Alfons Halldóra Sævarsdóttir, Reynir Rúnar Reynisson vélstjóri, Lúðvík Smárason og Jóhann Rúnar Kristinsson. mbl.is/Alfons Minnisvarði um síðutogaraútgerð Sjómennirnir Stefán Sigmar Óskarsson og Steinar Óli Gunnarsson frá Sjómannafélagi Eyjafjarðar voru auk Arngrími Brynjólfssyni og Bjarna Bjarnassyni frá Félagi Skipstjórnarmanna voru heiðraðir á Akureyri í tilefni dagsins. Á Akureyri var einnig afhjúpaður glæsilegur minnisvarði tileinkaður síðutogaraútgerð á Íslandi. F.v.: Trausti Jörundsarsson, Stefán Sigmar Óskarsson, Steinar Óli Gunnarsson, Arngrimur Brynjólfsson, Bjarni Bjarnasson og Pálmi Gauti Hjörleifsson. mbl.is/Þorgeir Minnisvarði um síðutogaraútgerð á Akureyri. mbl.is/Þorgeir Skrúðsigling á AKureyri með síðutogara í fararbroddi. Minnismerki um síðutogara var afhjúpað. mbl.is/Þorgeir Hátíðlegt í Grundarfirði Í kirkjunni í Grundarfirði voru sjómennirnir Ólafur Guðmundsson og Kristján Guðmundsson heiðraðir undir sjómannadagsmessu sem sr. Karen Hjartardóttir stýrði. Auk þess var Ragnheiður Þorarinsdóttir kona Kristjáns einnig heiðruð. Sjómannadagsmessa á Grundarfirði. mbl.is/Fjóla Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni „Mikill auður safnast á fárra hendur“ „Sjómenn eru ekki alveg sáttir“ „Flótti frá verkefnum leysir þau ekki“ Minnisvarði afhjúpaður á sjómannadaginn Fjölmenni í siglingu á Fáskrúðsfirði Vogmær á fiskasýningu Hafró Viðbrögð Faxaflóahafna komu á óvart Vara við tínslu kræklings úr fjörum Engin drauganet úr köngulóarsilki Stærsti túr Blængs á Íslandsmiðum Minnisvarði afhjúpaður á sjómannadaginn Vara við tínslu kræklings úr fjörum Fjölmenni í siglingu á Fáskrúðsfirði Vogmær á fiskasýningu Hafró Viðbrögð Faxaflóahafna komu á óvart Engin drauganet úr köngulóarsilki Stærsti túr Blængs á Íslandsmiðum Gott samstarf við lögreglu sjaldséð Þyrla kölluð út vegna elds í fiskibáti Brim kaupir Lýsi á lægra verði Brim kaupir Lýsi á lægra verði Stærsti túr Blængs á Íslandsmiðum Þyrla kölluð út vegna elds í fiskibáti Vara við tínslu kræklings úr fjörum „Mikill auður safnast á fárra hendur“ Minnisvarði afhjúpaður á sjómannadaginn Viðbrögð Faxaflóahafna komu á óvart Átta sóttu um stöðu forstjóra Hafró Fjölmenni í siglingu á Fáskrúðsfirði „Sjómenn eru ekki alveg sáttir“ Fleira áhugavert Boðar fyrirsvarsmenn til fundar Sóttu ferðalanga inn á Mælifellssand Rómantík á póstkortum Barátta Laxness fór fyrir Hæstarétt Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 5.6.26 638,65 kr/kg Þorskur, slægður 5.6.26 748,35 kr/kg Ýsa, óslægð 5.6.26 663,24 kr/kg Ýsa, slægð 5.6.26 591,47 kr/kg Ufsi, óslægður 5.6.26 352,15 kr/kg Ufsi, slægður 5.6.26 483,09 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 5.6.26 315,33 kr/kg Litli karfi 1.6.26 25,00 kr/kg Blálanga, óslægð 4.6.26 388,23 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 6.6.26 Hávella ÍS 426 Sjóstöng Þorskur 48 kg Samtals 48 kg 6.6.26 Dílaskarfur ÍS 418 Sjóstöng Þorskur 292 kg Samtals 292 kg 6.6.26 Himbrimi ÍS 444 Sjóstöng Þorskur 105 kg Samtals 105 kg 6.6.26 Svanur ÍS 443 Sjóstöng Þorskur 137 kg Samtals 137 kg 6.6.26 Þórshani ÍS 442 Sjóstöng Þorskur 240 kg Steinbítur 170 kg Samtals 410 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni „Mikill auður safnast á fárra hendur“ „Sjómenn eru ekki alveg sáttir“ „Flótti frá verkefnum leysir þau ekki“ Minnisvarði afhjúpaður á sjómannadaginn Fjölmenni í siglingu á Fáskrúðsfirði Vogmær á fiskasýningu Hafró Viðbrögð Faxaflóahafna komu á óvart Vara við tínslu kræklings úr fjörum Engin drauganet úr köngulóarsilki Stærsti túr Blængs á Íslandsmiðum Minnisvarði afhjúpaður á sjómannadaginn Vara við tínslu kræklings úr fjörum Fjölmenni í siglingu á Fáskrúðsfirði Vogmær á fiskasýningu Hafró Viðbrögð Faxaflóahafna komu á óvart Engin drauganet úr köngulóarsilki Stærsti túr Blængs á Íslandsmiðum Gott samstarf við lögreglu sjaldséð Þyrla kölluð út vegna elds í fiskibáti Brim kaupir Lýsi á lægra verði Brim kaupir Lýsi á lægra verði Stærsti túr Blængs á Íslandsmiðum Þyrla kölluð út vegna elds í fiskibáti Vara við tínslu kræklings úr fjörum „Mikill auður safnast á fárra hendur“ Minnisvarði afhjúpaður á sjómannadaginn Viðbrögð Faxaflóahafna komu á óvart Átta sóttu um stöðu forstjóra Hafró Fjölmenni í siglingu á Fáskrúðsfirði „Sjómenn eru ekki alveg sáttir“ Fleira áhugavert Áhrif á heilann koma seint í ljós Fá lán aðeins hluta skólaársins Boðar fyrirsvarsmenn til fundar „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 5.6.26 638,65 kr/kg Þorskur, slægður 5.6.26 748,35 kr/kg Ýsa, óslægð 5.6.26 663,24 kr/kg Ýsa, slægð 5.6.26 591,47 kr/kg Ufsi, óslægður 5.6.26 352,15 kr/kg Ufsi, slægður 5.6.26 483,09 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 5.6.26 315,33 kr/kg Litli karfi 1.6.26 25,00 kr/kg Blálanga, óslægð 4.6.26 388,23 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 6.6.26 Hávella ÍS 426 Sjóstöng Þorskur 48 kg Samtals 48 kg 6.6.26 Dílaskarfur ÍS 418 Sjóstöng Þorskur 292 kg Samtals 292 kg 6.6.26 Himbrimi ÍS 444 Sjóstöng Þorskur 105 kg Samtals 105 kg 6.6.26 Svanur ÍS 443 Sjóstöng Þorskur 137 kg Samtals 137 kg 6.6.26 Þórshani ÍS 442 Sjóstöng Þorskur 240 kg Steinbítur 170 kg Samtals 410 kg Skoða allar landanir »