Hlutabréf lækkuðu í fyrstu viðskiptum í Evrópu í morgun eftir gríðarlegar lækkanir á asískum mörkuðum. Mest var lækkunin í Suður-Kóreu, þar sem Kospi-vísitalan féll um 8,3% eftir að viðskipti voru stöðvuð tímabundið við opnun markaða vegna skarprar lækkunar. Lækkanirnar beindust einkum að tæknifyrirtækjum og örgjörvaframleiðendum sem hafa leitt hækkanir á hlutabréfamörkuðum á árinu vegna væntinga um vöxt í gervigreind. Samsung Electronics lækkaði um 10,2 prósent og SK Hynix um 7,7 prósent, en félögin tvö vega samanlagt um 40 prósent í Kospi-vísitölunni, samkvæmt Financial Times. Í Japan lækkaði Nikkei 225-vísitalan um 3,9%og breiðari Topix-vísitalan um 2,5%. Í Taívan, þar sem hálfleiðararisinn TSMC vegur þungt, féll Taiex-vísitalan mest um sex prósent áður en hún endaði daginn 3,5% lægri. Lækkanirnar smituðust yfir í Evrópu í morgun. Stoxx Europe 600-vísitalan lækkaði í fyrstu viðskiptum og ASML, stærsta félag Evrópu að markaðsvirði og eitt mikilvægasta félagið í alþjóðlegri keðju framleiðslu örgjörva, féll um meira en 3% í upphafi áður en lækkunin gekk að hluta til baka. Óróinn kemur í kjölfar lækkana á Wall Street á föstudag. Nasdaq Composite-vísitalan féll þá um 4,2%, sem var mesta lækkun hennar frá apríl í fyrra en sterk vinnumarkaðsskýrsla í Bandaríkjunum ýtti undir væntingar um að bandarískir vextir gætu haldist háir lengur en áður var talið. S&P 500-vísitalan lækkaði um 2,6% og batt þar með enda á níu vikna hækkunarskeið. Fjárfestar hafa á síðustu mánuðum safnast í fáein stór tækni- og örgjörvafyrirtæki, ekki síst þau sem tengjast uppbyggingu gervigreindarinnviða. Svo þröng markaðssýn getur aukið áhættu þegar væntingar breytast eða fjárfestar ákveða að taka hagnað eftir miklar hækkanir. „Það er blanda af nokkrum þáttum að verki á sama tíma,“ hefur Financial Times eftir Emmanuel Cau, hlutabréfagreinanda hjá Barclays. Hann nefnir áhyggjur af seðlabönkum, miklu framboði í heitasta hluta markaðarins og að stríðið í Íran sé áfram í bakgrunninum. Áhyggjur fjárfesta beinast einnig að mögulegu flóði nýrra hlutabréfaútboða. SpaceX er að undirbúa skráningu sem gæti orðið ein sú stærsta í sögunni, Meta er sögð skoða umfangsmikið hlutafjárútboð og Google hefur þegar tilkynnt um 85 milljarða dala hlutafjárútboð til að fjármagna gríðarlegar fjárfestingar í innviðum. Þá hafa endurnýjuð átök í Mið-Austurlöndum aukið þrýsting á markaði. Brothætt vopnahlé milli Ísraels og Írans virðist hafa riðlast eftir gagnkvæmar árásir og olíuverð hækkaði skarpt í morgun. Brent-olía var um 5% hærri og nálægt 98 dölum á tunnu, sem eykur áhyggjur af nýjum verðbólguþrýstingi. Sjá einnig Olíuverð hækkar eftir flugskeytaárásir Írans á Ísrael Ben Snider, hlutabréfaráðgjafi Goldman Sachs í Bandaríkjunum, sagði í greinargerð á föstudag að styrkur nýlegrar hækkunar hefði valdið vaxandi áhyggjum meðal viðskiptavina bankans af því að hlutabréf hefðu hækkað „of mikið, of hratt“ og endurspegli ósjálfbæra bjartsýni fjárfesta. Lækkunin í Asíu og fyrstu viðbrögð í Evrópu benda til þess að fjárfestar séu nú að endurmeta verðlagningu tæknifyrirtækja eftir mikla hækkun. Spurningin er hvort um tímabundna leiðréttingu sé að ræða eftir kraftmikið hækkunarskeið eða upphaf víðtækari söluhrinu á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum.