Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Miklar lækkanir á asískum hluta­bréfa­mörkuðum

Read Full Article →

Talsverðar lækkanir voru á hlutabréfamörkuðum í Asíu í morgun sem má einkum rekja til þess að hlutabréfaverð örgjörvaframleiðenda tóku dýfu. Jafnframt hefur hækkun olíuverðs í morgun litað hlutabréfamarkaði. Suður-kóreska hlutabréfavísitalan Kospi, sem inniheldur mörg tæknifyrirtæki, lækkaði um 9% í morgun. Stöðva þurfti viðskipti tímabundið um 20 mínútur á kóreska markaðnum. Japanska Nikkei 225 vísitalan lækkaði um 1,9%og kínverska CSI um 1,8%. Örjörvaframleiðandinn SK Hynix leiddi lækkanir en gengi félagsins lækkaði um 15,4% í morgun, sem er mesta lækkun á hlutabréfaverði þess innan dags frá skráningu. Lækkunin fylgir í kjölfar þess að félagið var tvískráð á bandarískan hlutabréfamarkað í síðustu viku. Þá lækkaði einnig japanski örgjörvaframleiðandinn Kioxia um 12,9% og Samsung Electronics um 10,7%. Í umfjöllun Financial Times er bent á að gengi umræddra félaga hafi tekið dýfu þrátt fyrir að Taiwan Semiconductor Manufacturing Co (TSMC), stærsti örgjörvaframleiðandi heims, greindi frá því á í morgun að tekjur félagsins á fyrri árshelmingi hefðu aukist um 36% samanborið við sama tímabil í fyrra, í samræmi við væntingar markaðsaðila. Framvirkir samningar tengdir Nasdaq 100 og S&P 500 gáfu til kynna að bandarísku hlutabréfavísitölurnar muni lækka um 1% annars vegar og 0,3% hins vegar við opnun markaða í morgun. Evrópska hlutabréfavísitalan Stoxx 600 hefur lækkað um 0,2% í viðskiptum dagsins en undirvísitala hennar sem inniheldur aðeins tæknifyrirtæki hefur lækkað um 0,8%.

Share this article