Innlent | mbl | 8.6.2026 | 14:11 Standa vörð um ímynd Íslands Með samkomulaginu verður til sameiginlegt verklag til að fylgjast með notkun landaheitisins erlendis og bregðast við þegar notkunin kann að ganga gegn hagsmunum íslensks útflutnings. mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Samkomulag um samstarf vegna hagsmunagæslu landaheitisins Ísland/Iceland hefur verið undirritað. Markmið samstarfsins er að vernda ímynd Íslands og gæta hagsmuna íslenskra útflutningsgreina þegar landaheitið er notað við markaðssetningu vara og þjónustu á erlendum mörkuðum. Íslandsstofa mun hafa umsjón með vöktun landaheitisins ásamt því að annast verkefnastjórn á samstarfinu, að því er segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. „Það er Íslandi mjög mikilvægt að við verndum áfram okkar dýrmæta landaheiti sem Ísland er og tryggjum að það sé ekki misnotað. Ég fagna því að aðilar sameinist nú um að byggja áfram á þeirri góðu vinnu sem þegar hefur verið unnin á þessu sviði. Ég er þess fullviss að samstarf atvinnulífs og stjórnvalda muni efla enn frekar vernd og vöktun landaheitisins Ísland og þar með hagsmuni íslensks atvinnulífs,“ er haft eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í tilkynningunni. Sameiginlegt verklag Samkomulagið hefur verið undirritað af fulltrúum utanríkisráðuneytisins, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, Samtaka atvinnulífsins, Hugverkastofunnar, Icelandic Trademark Holding ehf. og Íslandsstofu. Með samkomulaginu verður til sameiginlegt verklag til að fylgjast með notkun landaheitisins erlendis og bregðast við þegar notkunin kann að ganga gegn hagsmunum íslensks útflutnings, segir enn fremur. Frá vinstri: Brynhildur Georgsdóttir, forstöðumaður þróunar og reksturs hjá Íslandsstofu, Sigríður Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Trademark Holding, Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar og Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar Orðsporið dýrmætt „Orðspor Íslands er afar dýrmætt fyrir útflutningsgreinarnar okkar og ekki síst fyrir skapandi greinar og menningartengdan útflutning. Við höfum staðið í töluverðri baráttu um rétt íslenskra fyrirtækja til að kenna sig við landið en slík upprunatenging er nú á tímum sérlega mikilvæg,“ er haft eftir Loga Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, í tilkynningunni. „Okkar saga hefur verið öðrum þjóðum innblástur og því hefur Ísland verið leiðandi í umræðu um aukna vernd fyrir landaheiti innan alþjóðlega vörumerkjakerfisins. Það er því mikið gleðiefni að stjórnvöld og atvinnulíf taki nú höndum saman um að standa skipulega og markvisst að verndun og vöktun landaheitisins á alþjóðamarkaði,“ er enn fremur haft eftir Loga. Samstarfið byggir meðal annars á þeirri reynslu sem íslensk stjórnvöld hafa aflað í langvarandi vörumerkjadeilu við bresku verslunarkeðjuna Iceland Foods, þar sem niðurstaðan varð Íslandi í hag og undirstrikaði mikilvægi þess að standa vörð um landaheitið Ísland/Iceland á erlendum mörkuðum. Nánar hér. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Aðalsteinn aftur að sáttaborðinu Skoraði þrennu í sigri Frakka Ástráður: „Enn þá mjög erfið deila“ Gulf War veteran cycles across Iceland Flugfélög hafa meiri áhyggjur af sköttum en stríði Umræðan Rétturinn til að ráða eigin lífi Með brjóstvitið að leiðarljósi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hafnar því að ESB-aðild hafi áhrif á varnarsamning „Ekkert vesen“ að manna í viku Fái ekki að skipta um nafn Níu aðildarríki andmæla umhverfiskröfum ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Lögin sem Bubbi tók í Höllinni Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi „Versta mögulega sviðsmynd“ Reykjavík orðið fyrir árásum vegna dyggðaskreytinga 100 milljóna tjón hjá Sorpu í Álfsnesi Mega ekki fella niður gönguleið í Álfabakka Herða baráttuna gegn veggjalúsum „Þá lýsi ég því yfir að við séum ófær um þetta“ Þurfa reglulega að kalla til aðstoð Bubbi sleit liðband Tilbúnir að slást í sundklefunum Katla gæti verið nálægt þanmörkum „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Drengurinn er fundinn Katrín lofuð í Bretlandi Malbikun Reykjanesbrautar frestað Vann Hengil Ultra eftir aðeins 8 mánaða þjálfun 35 vilja starf sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit Bubbi sleit liðband Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íslendings saknað á Taílandi Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Nýjast á mbl.is » Aðalsteinn aftur að sáttaborðinu Skoraði þrennu í sigri Frakka Ástráður: „Enn þá mjög erfið deila“ Gulf War veteran cycles across Iceland Flugfélög hafa meiri áhyggjur af sköttum en stríði Umræðan Rétturinn til að ráða eigin lífi Með brjóstvitið að leiðarljósi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segja Bandaríkin bera ábyrgð á átökum Herða baráttuna gegn veggjalúsum „Ekkert vesen“ að manna í viku Þurfa reglulega að kalla til aðstoð Mest lesið Í gær Í vikunni Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Lögin sem Bubbi tók í Höllinni Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi „Versta mögulega sviðsmynd“ Reykjavík orðið fyrir árásum vegna dyggðaskreytinga 100 milljóna tjón hjá Sorpu í Álfsnesi Mega ekki fella niður gönguleið í Álfabakka Herða baráttuna gegn veggjalúsum „Þá lýsi ég því yfir að við séum ófær um þetta“ Þurfa reglulega að kalla til aðstoð Bubbi sleit liðband Tilbúnir að slást í sundklefunum Katla gæti verið nálægt þanmörkum „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Drengurinn er fundinn Katrín lofuð í Bretlandi Malbikun Reykjanesbrautar frestað Vann Hengil Ultra eftir aðeins 8 mánaða þjálfun 35 vilja starf sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit Bubbi sleit liðband Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íslendings saknað á Taílandi Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði