Viðreisn myndi missa fjóra þingmenn samkvæmt fylgimælingu í Þjóðarpúlsi Gallup í maí. Fengi Viðreisn sjö þingmenn væri kosið nú en fékk ellefu kjörna í kosningunum sem fram fóru 30. nóvember 2024. Jón Gnarr þingmaður Viðreisnar næði ekki kjöri yrði gengið til kosninga nú samkvæmt Gallup, ásamt þremur öðrum þingmönnum Viðreisnar. Fylgi flokksins hefur dalað nokkuð jafnt og þétt í könnunum Gallup frá kosningunum þegar flokkurinn fékk 15,8% atkvæða. Fylgið mældist 10,6% í maí en fór lægst í mars í 9,9%. Flokkur fólksins missar alla sína þingmenn samkvæmt Gallup í maí auk þess sem Framsóknarflokkurinn missir einn þingmann. Fjallað eru um Þjóðarpúls Galluð fyrir maí mánuð í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun. Áskrifendur geta lesið blaðið kl. 19.30 í kvöld hér .