Ein veigamesta breytingin sem innganga í ESB hefði fyrir utanríkisverslun Íslands er aðild að tollabandalagi sambandsins, samkvæmt nýrri skýrslu hugveitunnar Evrópustrauma fyrir Félag atvinnurekenda (FA) og og Íslensk-evrópska verslunarráðið um ESB og rekstrarumhverfi fyrirtækja. Með aðild að tollbandalaginu myndi innflutningur búvara frá ríkjum ESB opnast með brottfalli tolla, en um leið myndi ytri tollskrá gagnvart þriðju ríkjum hækka fyrir fjölda vöruflokka. Þá myndi kostnaður vegna tollskýrslugerðar og umsýslu lækka við inngöngu í ESB fyrir utanríkisviðskipti við önnur aðildarríki. Aftur á móti myndi fríverslunarsamningur Íslands og Kína falla úr gildi. Bent er á að viðskipti milli Íslands og Kína hafi aukist verulega á síðastliðnum áratug og að bæði inn- og útflutningur hafi margfaldast. „Þetta hefði í för með sér hækkun tolla á íslenskar útflutningsvörur til Kína. Stærstur hluti útflutnings eru fiskafurðir og námu þær alls um 19 milljörðum árið 2025 eða um 5% af heildarútflutningi sjávarafurða. Fyrir sjávarafurðir, sem nú njóta tollfríðinda samkvæmt samningnum, myndu tollar almennt hækka um 5–16%,“ segir í skýrslunni. Í umfjöllun um gjaldmiðlamál kemur fram að áhrif af upptöku evru kæmu fram í lægra vaxtastigi og minni gengisáhættu. Upptaka nýs gjaldmiðils tæki hins vegar tíma; það hefur tekið ný aðildarríki ESB þrjú til nítján ár að taka upp evru frá inngöngu. Ísland uppfylli í dag þrjú af fimm Maastricht-skilyrðum fyrir upptöku evru. Frá aldamótum hafi Ísland sjaldnast uppfyllt skilyrði um verðbólgu og vexti. Friðrik: Kostir og áskoranir á innri markaðnum Formaður FA, Friðrik Ingi Friðriksson, sagði á morgunverðarfundi þar sem skýrslan var kynnt að Evrópusambandið væri ekki einfalt fyrirbæri. „Það er hvorki alslæmt né algott. Þar eru kostir og gallar, rétt eins og í því fyrirkomulagi sem Ísland býr við í dag. Fyrir atvinnulífið skiptir mestu máli að umræðan sé vönduð, heiðarleg og byggð á staðreyndum. Við þurfum ekki meiri skotgrafahernað. Við þurfum ekki umræðu þar sem annar hópurinn sér ekkert jákvætt og hinn ekkert neikvætt. Við þurfum að geta rætt þetta stóra mál af yfirvegun, með virðingu fyrir ólíkum sjónarmiðum og með það að markmiði að fólk geti tekið upplýsta ákvörðun,“ sagði Friðrik. Sjá einnig Vald bænda innan ESB fer minnkandi Hann sagðist sjálfur hafa rekið fyrirtæki innan vébanda Evrópusambandsins í 15 ár samfleytt og á því tímabili var evran tekin upp í því landi. „Ég þekki því af eigin raun að rekstur á innri markaði Evrópu felur í sér bæði kosti og áskoranir. Þar eru tækifæri í stærri markaði, einfaldari viðskiptum og fyrirsjáanlegu regluverki. En þar eru líka flóknar reglur, skuldbindingar og aðstæður sem menn þurfa að skilja til fulls áður en þeir draga stórar ályktanir.“ Friðrik Ingi Friðriksson, formaður FA. © Aðsend mynd (AÐSEND)