Séra Guðni Már Harðarson prestur í Lindakirkju hefur verið ráðinn prestur við íslenska söfnuðinn í Danmörku og sendiráðsprestur Íslands í Kaupmannahöfn. Guðni hefur verið áberandi í kirkju- og æskulýðsstarfi um árabil, þjónað í Lindakirkju í 18 ár og komið að hinu vinsæla barnaefni Daginn í dag sem handritshöfundur og forsprakki. Hann kíkti í Síðdegisútvarpið á Rás 2 og sagði þeim Rúnari Róbertssyni og Hrafnhildi Halldórsdóttur frá tímamótunum. Of spennandi til að gera það ekki „Ég sótti um stöðu sendiráðsprests Íslendinga í Kaupmannahöfn og var valinn. Við fjölskyldan erum að fara þangað,“ staðfestir hann. Hann fer ásamt Ásdísi Björnsdóttur enskukennara og yngsta barni þeirra sem er tólf ára. „Maður er svo gamall að elsti er í háskóla og sá í miðjunni er að klára Menntaskólann við Hamrahlíð, á eitt ár eftir, en þessi tólf ára fer með okkur. Svo er spurning hvað hin gera síðar.“ Guðni hefur nú starfað í Lindakirkju í 18 ár og viðurkennir að söfnuðinum þar og starfinu fylgi söknuður. „Okkur fannst stórt stökk að taka þessa ákvörðun en þetta er of spennandi til að gera þetta ekki.“ Dýrmætt að prófa eitthvað nýtt Hann telur víst að hann, og fjölskyldan öll, verði reynslunni ríkari eftir dvölina í Kaupmannahöfn. Sjálfur bjó hann í Svíþjóð á heimili föðursystur sinnar þegar hann ákvað að verða prestur. „Maðurinn hennar er prestur og ég ákvað þetta þegar ég var í tíunda bekk og bjó á heimili sjúkrahúsprests í Svíþjóð. Ég fékk þá tækifæri til að fara að læra nýtt tungumál og ekkert þroskaði mann jafn hratt,“ segir hann. „Maður er alltaf að hugsa að það er dýrmætt fyrir mann sjálfan að prófa að gera eitthvað nýtt.“ Fimm íslenskir kórar og blómlegt samfélag Samfélag Íslendinga í Kaupmannahöfn er fjórði stærsti söfnuður landsmanna. „Á höfuðborgarsvæðinu eru langflestir Íslendingar, svo erum við með Eyjafjarðarsvæðið í kringum Akureyri og svo Reykjanesið. Fjórða stærsta svæðið er Kaupmannahöfn. Þar eru um 13 þúsund Íslendingar fyrir utan námsmenn sem ekki skrá sig formlega inn.“ Íslendingar í Kaupmannahöfn taka upp á ýmsu sér til dægrastyttingar og samfélagið blómstrar. „Það sem ég vissi ekki, en hef lært núna, er að það eru fimm íslenskir kórar starfandi í Danmörku, fjórir í Kaupmannahöfn.“ Guðni hefur verið afar vinsæll prestur í Lindakirkju og þar er mikið um að vera. „Við höfum verið mjög farsæl og það er gott að vera þar, allir vinna saman,“ segir hann. „Maður hefur verið með fólki í alls konar aðstæðum og myndað tengsl á síðustu 18 árum. Það er dálítið erfitt að klippa á þau.“ Söfnuðurinn hefur látið hann finna að hans verður saknað. „Það hringdi ein kona og sagði: „Ég trúi þessu ekki, þú áttir að jarða mig!““ segir Guðni og hlær. Hann gat þó bent henni á að þau kæmu til baka eftir þrjú ár, ef plön ganga eftir. „Þá sagði ég: „Þú verður að lifa í þrjú ár í viðbót.“ Við erum að hugsa þetta þannig að vera í þrjú ár, ég er ekki ráðinn til sérstaks tíma en við hugsuðum að það væri kannski heppilegur tími.“ Starfið í Kaupmannahöfn er afar fjölbreytt. Einu sinni í mánuði eru haldnar messur og tvisvar í mánuði er sunnudagaskóli. Auk þess tekur presturinn þátt í ýmsu starfi sem tengist borgaraþjónustu fyrir Íslendinga. „Það getur verið alls konar, maður er sendur á spítala því fólk er með erfið veikindi eða í fangelsum og þá er prestur sendur sem hluti af sendiráðsteyminu í slíkar aðstæður. Svo getur það bara verið allt sem hægt er að hjálpa til með að gera, útvega vegabréf og ég veit ekki hvað og hvað,“ segir hann. Í lok viðtals valdi Guðni lagið Papirsklip með Kim Larsen, sem margir Íslendingar geta sungið hástöfum með. „Það er svo fallegur texti í þessu lagi. Hann segir: „Lífið er langt en gæfan er stutt en gæfusamur er sá sem þorir að deila gæfunni“. Það finnst mér ótrúlega flott,“ segir Guðni. „Okkur fannst stórt stökk að taka þessa ákvörðun en of spennandi til að gera þetta ekki,“ segir séra Guðni Már Harðarson, prestur í Lindakirkju. Næstu ár þjónar hann sem prestur við íslenska söfnuðinn í Danmörku og ljóst að hans verður saknað. Hann gerði þó nýlega uppgötvun varðandi lagið þegar hann söng það sjálfur. „Í miðju lagi kemur svo latínukór sem syngur Domine et sanctus eða Drottinn er heilagur. Það er sálmur í þessu lagi sem ég fattaði ekki fyrr en ég fór að syngja þetta í karókí um daginn.“ „Okkur fannst stórt stökk að taka þessa ákvörðun en of spennandi til að gera þetta ekki,“ segir séra Guðni Már Harðarson, prestur í Lindakirkju. Næstu ár þjónar hann sem prestur við íslenska söfnuðinn í Danmörku og ljóst að hans verður saknað.