Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sváfu hvorki né borðuðu í tvo sólarhringa

Read Full Article →

Innlent | mbl | 29.6.2026 | 19:20 Sváfu hvorki né borðuðu í tvo sólarhringa Fjölskyldan hafðist við á hótelherbergi sínu í tæpa tvo sólarhringa án þess að sofa eða borða. mbl.is/Ólafur Árdal Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Manndráp á Edition-hótelinu Átti erfitt með að horfa á upptökuna Gúggluðu sjálfsvíg og hnífstungur Gaf samstarfsfólki sínu „kveðjugjöf“ Skipulögðu ferðina án dóttur sinnar Mætti ekki til vinnu frá Íslandi » Fleiri tengdar fréttir Mancel-fjölskyldan í Edition-málinu svokallaða hafðist við á hótelherbergi sínu í tæpa tvo sólarhringa án þess að sofa eða borða áður en Catherine Mancel og faðir hennar, Emeric, létu lífið. Þetta kom fram í viðbótarskýrslutöku yfir Ming Ting Mancel í héraðsdómi Reykjavíkur í dag en hún er ákærð fyrir að hafa orðið dóttur sinni að bana í samverknaði við eiginmann sinn. Samkvæmt gögnum málsins fór enginn út af hótelherberginu frá því að þau komu heim eftir kvöldverð á sushi-stað um klukkan 19 að kvöldi 11. júní og þar til Ming kallaði eftir aðstoð 14. júní. Catherine og Emeric létu lífið um miðjan dag 13. júní samkvæmt krufningarskýrslu. Frétt af mbl.is Gúggluðu sjálfsvíg og hnífstungur Frétt af mbl.is Átti erfitt með að horfa á upptökuna Svaf við hlið foreldra sinna Ming sagði dóttur sína hafa sofið síðustu tvær nætur sínar, 9. og 10. júní, við hlið foreldra sinna í rúmi þeirra. Bent var á að samkvæmt gögnum málsins þýddi það að fjölskyldan hefði vakað í um tvo sólarhringa. Spurð hvort þau hefðu borðað á þeim tíma svaraði Ming: „Nei, við borðuðum ekki.“ Þau hefðu fengið sér eitthvað snarl en enga máltíð. Ming bætti svo við með hækkuðum rómi að matur hefði ekki verið þeim efst í huga og að það væri ekki það sem fólk hugsaði um við slíkar aðstæður. Þá kvaðst hún ekki geta útskýrt hvers vegna tíminn frá kvöldverðinum að andlátunum hefði orðið svo langur. Hún sagði að fyrir henni hefði þetta verið ein nótt, þótt gögnin sýndu tvær. „Fyrir mér gerðist þetta um kvöldið og ég get ekki útskýrt þennan mun,“ sagði hún. Fjölskyldan hefði horft á sjónvarp og hlustað á kóreska tónlist en slökkt á því áður en verknaðurinn var framinn. Frétt af mbl.is Gaf samstarfsfólki sínu „kveðjugjöf“ Ming Ting Mancel. mbl.is/Eggert Jóhannesson Gat ekki útskýrt leitina Eitt þeirra raftækja sem lögregla rannsakaði var notað að morgni 12. júní, klukkan 10:21, þegar leitað var að gengi 25 og 35 þúsund íslenskra króna yfir í evrum. Ming var spurð hver hefði verið að leita að þessu en hún kvaðst ekki vita það og sagðist ekki vita hve háar þær fjárhæðir væru í evrum. Hún var einnig spurð út í brotna framhlið á granítplötu á vaski inni á baðherbergi herbergisins. Hún kvaðst ekki viss um hvernig það hefði gerst en taldi hugsanlegt að skemmdirnar hefðu orðið þegar eiginmaður hennar féll til jarðar. Emeric hefði verið orðinn mjög veikburða og fallið nokkrum sinnum, bæði inni á baðherberginu og utan þess, og hún hefði hjálpað honum á fætur. Að mati lögreglu þurfti nokkurt átak til að brjóta plötuna. Ming kvaðst ekki muna eftir að hafa heyrt hávaða þegar platan gæti hafa brotnað og gat ekki sagt til um hvort hún hefði þegar verið brotin þegar fjölskyldan fékk herbergið. Aðalmeðferð málsins heldur áfram í fyrramálið. Frétt af mbl.is Skipulögðu ferðina án dóttur sinnar Tengdar fréttir Manndráp á Edition-hótelinu Átti erfitt með að horfa á upptökuna Gúggluðu sjálfsvíg og hnífstungur Gaf samstarfsfólki sínu „kveðjugjöf“ Skipulögðu ferðina án dóttur sinnar Mætti ekki til vinnu frá Íslandi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sváfu hvorki né borðuðu í tvo sólarhringa Kane líklega áfram hjá Bayern Brasilía í 16-liða úrslit eftir hádramatík Vantar þig innblástur fyrir næstu veislu? Handtekin eftir háreysti á Hard Rock: Ekki mismunun Umræðan Öldruðum tryggð réttarbót Forsendur þjóðlegrar ritmenntar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Einn handtekinn í lögregluaðgerð í Reykholti Framkvæmd sem margborgaði sig „Svo lengi sem hann var á lífi ætlaði ég að lifa“ Vestmannaeyingar kalla eftir varaskipi Mest lesið Í gær Í vikunni Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Slysið varð í brattri hlíð Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Mikill léttir fyrir starfsfólk skólans Skipulögðu ferðina án dóttur sinnar Samgöngurnar við Eyjar „hryllingur“ Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Réðst á hóp drengja sem renndi sér of nærri Trump yfirgefur landið Áratuga landamerkjadeila til lykta leidd Banna viðtöl og myndbandsupptökur Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Óánægðir með fyrirkomulag veiðanna Flugeldar í Safamýri um miðnætti Spretti út úr búðinni með peysu í hendi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Rúður sprungu í 400 gráðu hita Nýjast á mbl.is » Sváfu hvorki né borðuðu í tvo sólarhringa Kane líklega áfram hjá Bayern Brasilía í 16-liða úrslit eftir hádramatík Vantar þig innblástur fyrir næstu veislu? Handtekin eftir háreysti á Hard Rock: Ekki mismunun Umræðan Öldruðum tryggð réttarbót Forsendur þjóðlegrar ritmenntar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skipulögðu ferðina án dóttur sinnar Vætusamt veður fram undan víðast hvar „Svo lengi sem hann var á lífi ætlaði ég að lifa“ Samgöngurnar við Eyjar „hryllingur“ Mest lesið Í gær Í vikunni Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Slysið varð í brattri hlíð Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Mikill léttir fyrir starfsfólk skólans Skipulögðu ferðina án dóttur sinnar Samgöngurnar við Eyjar „hryllingur“ Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Réðst á hóp drengja sem renndi sér of nærri Trump yfirgefur landið Áratuga landamerkjadeila til lykta leidd Banna viðtöl og myndbandsupptökur Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Óánægðir með fyrirkomulag veiðanna Flugeldar í Safamýri um miðnætti Spretti út úr búðinni með peysu í hendi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Rúður sprungu í 400 gráðu hita

Share this article