Bandaríkin lögðu Paragvæ að velli 4-1 í fyrsta leik D-riðils á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Bandaríkjamenn eru ein þriggja gestgjafaþjóða mótsins og léku á heimavelli á troðfullum Los Angeles-leikvanginum í Kaliforníu. Heimamenn fóru mun betur af stað. Fyrsta mark Bandaríkjanna kom á sjöundu mínútu leiksins eftir sjálfsmark Damián Bobadilla. Folarin Balogun kom boltanum í netið fyrir Bandaríkjamenn á 28. mínútu en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Balogun var þó hvergi nærri hættur. Þremur mínútum síðar skoraði hann löglegt mark og kom Bandaríkjunum í 2-0. Hann bætti svo öðru marki við í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Staðan var því 3-0 þegar liðin héldu til búningsklefa í hálfleik. Liðsmenn Paragvæ höfðu þó ekki lagt árar í bát. Maurício minnkaði muninn í 3-1 með marki á 73. mínútu. Á lokasekúndum sjö mínútna uppbótartíma leiksins gerði Giovanni Reyna endanlega út um hann þegar hann skoraði fjórða mark Bandaríkjanna. Næsti leikur á HM er viðureign Katar og Sviss. Leikurinn hefst klukkan 19 og verður í beinni útsendingu á RÚV 2.