Paragvæ vann Tyrkland 1-0 í leik liðanna í D-riðli sem fram fór í nótt á leikvanginum í San Francisco. Mark Paragvæ kom á 2. mínútu leiksins þegar Matias Galarza skoraði glæsilegt mark fyrir utan teig. Miguel Almiron, leikmaður Paragvæ, fékk rautt spjald skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks. Spjaldið fékk hann fyrir að hylja andlit sitt þegar hann talaði við andstæðing sinn Mert Mulder. Slíkt er bannað en ný regla var tekin upp eftir að Gianluca Prestianni, leikmaður Benfica, huldi andlit sitt og sagði rasísk ókvæðisorð við Vinícius Júnior, leikmann Real Madrid fyrr á þessu ári. Tyrkir sóttu hart fram í leiknum en það skilaði þó ekki tilætluðum árangri. Þeir eiga leik eftir á móti Bandaríkjunum á fimmtudag. Þeir eru þó neðstir í riðlinum og eru dottnir út, óháð því hvernig sá leikur fer. Paragvæ mætir næst Ástralíu á föstudaginn.