Bandaríkin eru sigurvegarar D-riðils á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Liðið getur þakkað það góðu gengi í fyrstu tveimur leikjum sínum á mótinu en Bandaríkjamenn töpuðu 3-2 gegn Tyrkjum í nótt. Bæði lið fóru af stað með krafti. Bandaríkin komust 1-0 yfir strax á 3. mínútu leiksins með marki frá Auston Trusty. Arda Güler jafnaði metin fyrir Tyrki sjö mínútum seinna. Þeir komust svo yfir á 31. mínútu með marki frá Barış Alper Yılmaz á 31. mínútu. Staðan 2-1 í hálfleik fyrir Tyrkjum. Sebastian Berhalfter jafnaði svo metin fyrir Bandaríkin á 49. mínútu leiksins. Á lokasekúndum átta mínútna uppbótartímans kom Kaan Ayhan Tyrkjum aftur yfir og lokatölurnar 3-2. Þrátt fyrir góðan sigur þá eru Tyrkir úr leik á mótinu. Það vissu Tyrkir fyrir leikinn í nótt en þeir höfðu tapað fyrstu tveimur leikjum sínum á mótinu. Viðureign Ástralíu og Paragvæ heldur rólegri Það var öllu minna um að vera í leik Ástralíu og Paragvæ. Leiknum lauk með 0-0 jafntefli. Bæði lið geta þó vel við unað. Ástralir eru komnir áfram í útsláttarkeppnina en þeir enduðu í öðru sæti riðilsins. Paragvæ er í þriðja sæti með 4 stig, rétt eins og Ástralir. Árangur þeirra ætti líklega að fleyta þeim áfram í útsláttarkeppnina. Það er þó ekki útilokað að úrslit úr öðrum riðlum geri vonir Paragvæja að engu.