Skotar unnu 1–0 sigur á Haítí í C-riðli HM í fótbolta. Eina markið kom á 28. mínútu þegar Skotinn John McGinn skoraði eftir skot innan úr teig. Boltinn hafði viðkomu í varnarmanni og breytti um stefnu eftir að markvörður Haítí hafði þegar skutlað sér í hitt hornið. Haítímenn voru sterkari í síðari hálfleik. Þegar um fimm mínútur voru eftir af leiknum var Frantzdy Pierro nálægt því að jafna metin með skalla, en boltinn fór rétt framhjá. Þetta var þetta fyrsti sigur landsins í leik á HM síðan á Ítalíu 1990 en liðið var síðast með á mótinu árið 1998. Sigurinn gæti reynst Skotum dýrmætur. Liðin eru í riðli með Brasilíu og Marokkó, sem sitja í 6. og 7. sæti heimslistans, og var fyrir fram gert ráð fyrir að þau myndu enda í efstu sætum riðilsins, en Skotar og Haítímenn berjast um þriðja sætið.