Marokkó vann Haítí 4-2 í afar fjörugum leik. Haítí skoraði sín fyrstu mörk á HM eftir 52 ára bið, en liðið skoraði ekki á HM 1974, né í fyrstu tveimur leikjum sínum í ár. Lenny Joseph kom þeim yfir er hann stýrði boltanum í netið með hælnum. Haítímenn í stúkunni í Atlanta trylltust af fögnuði. Það hljómaði eins og allir 23.000 Haítímennirnir sem búa á stór-Atlanta svæðinu hafi verið á vellinum. Það er fimmta stærsta samfélag Haítímanna í Bandaríkjunum. Marokkómenn jöfnuðu metin alltaf jafn harðan og Hakimi jafnaði í fyrsta sinn. Isidor kom Haítí aftur yfir með einu af mörkum mótsins hingað til. Saibari jafnaði svo metin aftur eftir góðan undirbúning Hakimi. Rahimi kom Marokkó svo yfir eftir hornspyrnu á 78. mínútu. Yassine gerði svo út um leikinn með fjórða markinu undir lok leiks. Marokkó fer áfram sem liðið í 2. sæti. Haítí var fyrir leik dagsins úr leik á HM en liðið getur gengið stolt frá borði. Svona eru 32-liða úrslitin eins og er, ef miðað er við stöðu liða úr B- og C-riðli: Holland - Marokkó Mexíkó - Skotland Brasilía - Japan Sviss - Belgía Suður-Kórea - Kanada Bandaríkin - Bosnía Mörkin má sjá hér: Marokkó vann öruggan sigur gegn Haíti, 4-2, og fer þar með áfram í 32-liða úrslit. Marokkó varð í öðru sæti í C-riðli. Haítí var úr leik fyrir leikinn en skoraði sín fyrstu mörk á HM. Liðið var fyrst með á HM 1974.