Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Allt það helsta: Marokkó - Haíti

Read Full Article →

Marokkó vann Haítí 4-2 í afar fjörugum leik. Haítí skoraði sín fyrstu mörk á HM eftir 52 ára bið, en liðið skoraði ekki á HM 1974, né í fyrstu tveimur leikjum sínum í ár. Lenny Joseph kom þeim yfir er hann stýrði boltanum í netið með hælnum. Haítímenn í stúkunni í Atlanta trylltust af fögnuði. Marokkómenn jöfnuðu metin alltaf jafn harðan og Hakimi jafnaði í fyrsta sinn. Isidor kom Haítí aftur yfir með einu af mörkum mótsins hingað til. Saibari jafnaði svo metin aftur eftir góðan undirbúning Hakimi. Rahimi kom Marokkó svo yfir eftir hornspyrnu á 78. mínútu. Yassine gerði svo út um leikinn með fjórða markinu undir lok leiks. Marokkó fer áfram sem liðið í 2. sæti. Haítí var fyrir leik dagsins úr leik á HM en liðið getur gengið stolt frá borði. 32-liða úrslit eins og er: Holland – Marokkó

Share this article