- What: A significant earthquake was recorded in Bárðarbunga.
- Impact: Monitored by the Icelandic Meteorological Office.
Stærsti skjálftinn í jarðskjálftahrinunni sem hófst í Bárðarbungu í gærkvöldi mældist 4,8 að stærð. Frá þessu segir í tilkynningu frá Náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands. Um 400 skjálftar hafa mælst síðan hrinan hófst. Skjalftavirknin var mest til klukkan 3 í nótt en síðan hefur dregið úr henni. Þó er enn of fljótt að segja til um hvort hrinan sé að fjara út. Síðast varð sambærileg jarðskjálftahrina í Bárðarbunguöskjunni í janúar á síðasta ári. Skömmu fyrir klukkan eitt í nótt hækkaði Veðurstofan fluglitakóða upp í gulan. Það þýðir að eldstöð sýni merki um virkni umfram venjulegt ástand. Vegna óvissu um framvindu atburðarins verður fluglitakóðinn áfram gulur. Enginn gosórói mældist þó á svæðinu í nótt. Aukin skjálftavirkni síðustu tvö ár Bárðarbunga er ein öflugasta eldstöð landsins og minnir reglulega á sig með jarðskjálftum. Síðastliðin tvö ár hefur skjálftavirkni aukist nokkuð og mælingar sýna að öskjubotninn hefur lyfst um tugi metra frá því að gosinu í Holuhrauni lauk fyrir áratug en það var síðasta eldgos í eldstöðvakerfi Bárðarbungu. Það er enn stærsta hraungos frá lokum Skaftárelda.