Innlent | Morgunblaðið | 14.6.2026 | 11:30 Vilja stöðva íslenskar sérlausnir „Evrópusamstarfið getur ekki réttlætt sérstakar fiskveiðireglur fyrir nýtt aðildarríki á meðan írskar sjávarbyggðir halda áfram að bera byrðarnar af kvótaskerðingu, fækkunum í flotanum og gölluðu regluverki ESB.“ Ljósmynd/ESB Gunnlaugur Snær Ólafsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Fara fram á þingstubb í ágúst Hefur ekkert með ESB að gera Ítrekar gagnrýnina: „algjörlega ótímabær“ Kristrún: „Auðvitað mótmælum við óeðlilegum afskiptum“ » Fleiri tengdar fréttir Aodh O’Donnell, framkvæmdastjóri samtaka írskra sjávarafurðastöðva (IFPO), lýsir miklum áhyggjum af hugmyndum um sérútbúin skilyrði fyrir fiskveiðar Íslendinga, gangi landið í Evrópusambandið. Ekki komi til greina að takmarka aðgengi írskra skipa að íslenskri lögsögu. „Evrópusamstarfið getur ekki réttlætt sérstakar fiskveiðireglur fyrir nýtt aðildarríki á meðan írskar sjávarbyggðir halda áfram að bera byrðarnar af kvótaskerðingu, fækkunum í flotanum og gölluðu regluverki ESB. Nýlegar fréttir af því að ESB gæti boðið Íslandi undanþágur [frá sameiginlegri fiskveiðistefnu sambandsins] eru áhyggjuefni fyrir írskar sjávarbyggðir. Þessar hugmyndir virðast vera hluti af stærra máli tengdu stöðu alþjóðastjórnmála og samskiptum ESB og Íslands. Við óttumst enn og aftur að Írland þurfi að bera kostnaðinn af formlegu samkomulagi strandríkja eða aðild Íslands að sambandinu.“ Eining virðist því vera innan sjávarútvegsins á Írlandi um mögulega aðild Íslands. Fyrri í vikunni sagði Dominic Rihan, framkvæmdastjóri samtaka írskra útvegsfyrirtækja (KFO), í samtali við Morgunblaðið, mögulegar undanþágur og sérlausnir fyrir íslenskan sjávarútveg koma á kostnað írskra sjómanna. „Írskur sjávarútvegur hefur áhyggjur af áhrifum þess að íslensk skip fái aðgang að hafsvæði ESB og að veiðiálag aukist með tilheyrandi samkeppni við okkar skip.“ Í veikri stöðu Að mati O’Donnells er kýrskýrt að mögulegar sérlausnir eða undanþágur feli í sér töluverðar breytingar á sameiginlegri fiskveiðistefnu ESB. „Þessar breytingar gætu skilað Íslendingum spennandi ávinningi í tengslum við veiðar á deilistofnum uppsjávartegunda eins og makríl og kolmunna. Á sama tíma munu okkar félagsmenn halda áfram að bera mest af tapinu sem kom til vegna Brexit. Þeir halda einnig áfram að þjást því minnihluti ríkja kom í veg fyrir virkjun Haag-fríðindanna 2025.“ Aodh O’Donnell Haag-fríðindin eru sérstakt öryggisnet innan sameiginlegu fiskveiðistefnunnar sem komið var á 1976 og felur í sér heimildir til að auka fiskveiðiheimildir írskra skipa við efnahagsáföll. Með því að koma í veg fyrir virkjun þessara réttinda gerðu önnur ESB-ríki það ómögulegt fyrir írsk stjórnvöld að veita veiðiheimildir til að vega upp á móti skerðingum sem urðu í tengslum við úrsögn Bretlands úr sambandinu. „Afstaða IFPO til mögulegrar ESB-aðildar Íslands er skýr. Sérhver liður aðildarferlisins verður að taka mið af því að vernda að fullu hagsmuni írskra sjávarbyggða og sjávarútvegsins í heild.“ Grípa til aðgerða O’Donnell segir stefnu IFPO óbreytta. Hún hafnar frjálsu aðgengi að írskri lögsögu nema aðildarríki bjóði gagnkvæman aðgang með tilheyrandi ávinningi fyrir írskan sjávarútveg. „Írski flotinn og strandsamfélögin standa nú þegar frammi fyrir of mikilli óvissu. Sérhvert fyrirkomulag mun líklega einblína á aðgang að deilistofnunum sem finnast á hafsvæðum okkar. […] Írland verður að grípa til aðgerða á vettvangi ráðherraráðsins til að koma í veg fyrir annað tap fyrir uppsjávarflotann okkar vegna breytinga á sjávarútvegsstefnunni.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Fara fram á þingstubb í ágúst Hefur ekkert með ESB að gera Ítrekar gagnrýnina: „algjörlega ótímabær“ Kristrún: „Auðvitað mótmælum við óeðlilegum afskiptum“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Englendingar í skjóli vegna hvirfilbyls Vilja stöðva íslenskar sérlausnir „Festir blómin með nöglum við veisluborðið“ Greiða Sómalanum að fullu Búinn með holu í höggi og hundraðkall Umræðan „Gekk, fekk vargr at drekka“ Þessu fer að ljúka í bili Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Musk fyrsti billjónamæringur sögunnar Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Mest lesið Í gær Í vikunni Færa kóða á gult: Hrinan líklega sú kröftugasta Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna „Ég var í nýjum skóm í barnastærð“ Leitin að skipinu gæti tekið mörg ár „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ „Uppskrift að mjög slæmum kokteil“ Ætlar að verða sá fyrsti sem syndir Lagarfljót Lífsmáti að vera í þessari hljómsveit Skjálftahrinan í rénun: Áfram á gulum kóða Myndir: Veðurblíðan heldur áfram Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Andlát: Þórdís Kristmundsdóttir „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Þremur skemmtistöðum lokað í aðgerðum lögreglu Skemmtistaðnum Exit lokað í nótt Jafn mikil verðmæti aldrei sokkið við Ísland Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Leynd yfir samskiptum aflétt með úrskurði Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Tilbúnir að slást í sundklefunum Óttast er að hundruð missi vinnuna Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » Englendingar í skjóli vegna hvirfilbyls Vilja stöðva íslenskar sérlausnir „Festir blómin með nöglum við veisluborðið“ Greiða Sómalanum að fullu Búinn með holu í höggi og hundraðkall Umræðan „Gekk, fekk vargr at drekka“ Þessu fer að ljúka í bili Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Nafnvextir einir segja lítið um húsnæðiskostnað Musk fyrsti billjónamæringur sögunnar Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Mest lesið Í gær Í vikunni Færa kóða á gult: Hrinan líklega sú kröftugasta Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna „Ég var í nýjum skóm í barnastærð“ Leitin að skipinu gæti tekið mörg ár „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ „Uppskrift að mjög slæmum kokteil“ Ætlar að verða sá fyrsti sem syndir Lagarfljót Lífsmáti að vera í þessari hljómsveit Skjálftahrinan í rénun: Áfram á gulum kóða Myndir: Veðurblíðan heldur áfram Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Andlát: Þórdís Kristmundsdóttir „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Þremur skemmtistöðum lokað í aðgerðum lögreglu Skemmtistaðnum Exit lokað í nótt Jafn mikil verðmæti aldrei sokkið við Ísland Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Leynd yfir samskiptum aflétt með úrskurði Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Tilbúnir að slást í sundklefunum Óttast er að hundruð missi vinnuna Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum