Innlent | Morgunblaðið | 15.6.2026 | 6:00 Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Hækkunin lækkar virði Landsbankans um 17,4 milljarða. mbl.is/Karítas Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Aukin skattheimta á fjármálafyrirtæki, sem boðuð er í fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031, gæti valdið því að virði viðskiptabankanna lækki um tugi milljarða króna. Þetta kemur fram í nýrri greiningu sem unnin var af greiningarfyrirtækinu IFS greiningu. Samkvæmt dagskrá Alþingis verða greidd atkvæði um tillögu Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, á þingfundi í dag en hvergi kemur þó fram í tillögunni hve miklu skattahækkunin eigi að skila ríkissjóði. Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, hefur þó áður fullyrt í skrifum sínum að skattahækkunin eigi að skila ríkissjóði um sex milljörðum á ári. Bankaskatturinn er í dag reiknaður sem 0,145% af bókfærðum skuldum fjármálafyrirtækja en í greiningunni kemur fram að ef ætlunin sé að auka skattheimtuna um sex milljarða þurfi að hækka prósentuna upp í 0,269%. Telur IFS greining að ef hækkunin yrði svo mikil myndi virði bankanna lækka um í kringum fjögur prósent. Þannig myndi virði Landsbankans lækka um 17,4 milljarða, virði Íslandsbanka myndi lækka um 12,4 milljarða og virði Arion banka sömuleiðis en gert er ráð fyrir að virði Kviku banka myndi lækka um 2,6 milljarða. Telur greiningarfyrirtækið því heildaráhrif aukinnar skattheimtu á virði bankanna fjögurra vera 44,9 milljarðar króna en eins og áður segir hefur því verið haldið fram að skattahækkunin muni skila ríkissjóði um sex milljörðum króna á ári. Hlutur ríkisins lækkar í virði Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu stóðu fyrir fundi um skattahækkunina í síðustu viku í Háskóla Íslands, nánar tiltekið í Veröld, húsi Vigdísar, en þar birti ráðgjafarfyrirtækið Intellecon samantekt, þar sem fram kom að ríkissjóður ætti um 40% af viðskiptabönkunum í gegnum hlut sinn í Landsbankanum og að lífeyrissjóðir og einstaklingar ættu því til viðbótar önnur 40% í bönkunum. Út frá forsendum Intellecon má því ætla að hlutur ríkisins í bönkunum muni lækka um 17 milljarða ef til skattahækkunarinnar kemur. Hlutur lífeyrissjóða myndi þá lækka um 13 milljarða og hlutur einstaklinga um 4,5 milljarða til viðbótar. Sérstakir bankaskattar hér á landi eru þegar margfaldir á við það sem þekkist í nágrannaríkjum Íslands. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ógnaði með eggvopni í ráni Besta veðrið norðaustan- og austanlands Ríkið sakað um að brjóta samkomulag Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Þinglok nálgast nú óðfluga Umræðan Fatlað fólk í samgönguáætlun Pakkaferðin Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Umfangsmikil árás gerð á Kænugarð Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Fleiri andvígir en fylgjandi Degi sem varaformanni Margt líkt með Alaska og Íslandi Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið: Kötturinn Rambó elskar að fara í sturtu Fleiri andvígir en fylgjandi Degi sem varaformanni Komst í kynni við blóðsugur og köngulær Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fjölmennasta útskrift í sögu skólans Full ástæða til þess að vera á varðbergi Strætó illa farinn eftir árekstur Þrír slösuðust í árekstri á Norðurlandi Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Færa kóða á gult: Hrinan líklega sú kröftugasta Strætó illa farinn eftir árekstur Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Full ástæða til þess að vera á varðbergi „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ „Ég var í nýjum skóm í barnastærð“ Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Þrír slösuðust í árekstri á Norðurlandi Óku á göngugötu í miðbænum Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Óttast er að hundruð missi vinnuna Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » Ógnaði með eggvopni í ráni Besta veðrið norðaustan- og austanlands Ríkið sakað um að brjóta samkomulag Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Þinglok nálgast nú óðfluga Umræðan Fatlað fólk í samgönguáætlun Pakkaferðin Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Leynd yfir samskiptum aflétt með úrskurði Myndskeið: Kötturinn Rambó elskar að fara í sturtu Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi „Ég átti rosalega erfitt í skóla“ Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið: Kötturinn Rambó elskar að fara í sturtu Fleiri andvígir en fylgjandi Degi sem varaformanni Komst í kynni við blóðsugur og köngulær Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fjölmennasta útskrift í sögu skólans Full ástæða til þess að vera á varðbergi Strætó illa farinn eftir árekstur Þrír slösuðust í árekstri á Norðurlandi Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Færa kóða á gult: Hrinan líklega sú kröftugasta Strætó illa farinn eftir árekstur Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Full ástæða til þess að vera á varðbergi „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ „Ég var í nýjum skóm í barnastærð“ Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Þrír slösuðust í árekstri á Norðurlandi Óku á göngugötu í miðbænum Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Óttast er að hundruð missi vinnuna Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum