- What: Financial details about Alvotech's convertible bonds
- Impact: Financial market activity
Milljarðs skortstaða Acasta Partners UK LLP í Alvotech, sem Viðskiptablaðið greindi frá fyrir helgi , er að öllum líkindum ekki hefðbundið veðmál gegn félaginu heldur vörn á móti breytanlegum skuldabréfum Alvotech. Leiða má líkur að því að breski sjóðurinn hafi tekið þátt í lokuðu útboði Alvotech á breytanlegum skuldabréfum á dögunum og ákveðið að skortselja hlutabréf á móti þeirri stöðu. Slík vörn er algeng í útboðum á breytanlegum skuldabréfum en Alvotech gerði beinlínis ráð fyrir slíkri stöðutöku í uppsetningu útboðsins og bauðst dótturfélag Alvotech til að lána fjárfestum hlutabréf. Samkvæmt heimasíðu Acasta fjárfestir sjóðurinn aðallega í breytanlegum skuldabréfum. Félagið lýsir sér jafnframt sem sérhæfðum alþjóðlegum fjárfesti sem nýtir meðal annars afleiður tengdar breytanlegum skuldabréfum og stundar viðskipti sem byggja á að nýta sér sveiflur og misverðlagningu á mörkuðum. Breski sjóðurinn er því líklegast ekki að taka stöðu til lengri tíma og veðja á lækkun hlutabréfanna. Fjárfestum boðið vörn gegn gengissveiflum Skortstaðan er líklegast hluti af svokallaðri delta-vörn sem Alvotech bauð upp á í síðasta skuldabréfaútboði þar sem skuldabréfafjárfestir selur hlutabréf á móti breytanlegu skuldabréfi til að draga úr næmni heildarstöðunnar fyrir skammtímasveiflum í hlutabréfaverði. Alvotech lauk í desember lokuðu útboði á breytanlegum skuldabréfum að fjárhæð 108 milljónir bandaríkjadala til hóps um 20 alþjóðlegra fjárfesta. Bréfin bera 6,875% vexti, sem greiðast hálfsárslega, og eru á lokagjalddaga í lok árs 2030. Hvert skuldabréf er að nafnverði 200.000 bandaríkjadala. Sjá einnig Skuldabréfafjárfestar vörðu sig gegn gengissveiflum Breytanlegt skuldabréf er í grunninn skuldabréf sem ber vexti en veitir fjárfestinum jafnframt rétt til að breyta því síðar í hlutabréf á fyrir fram ákveðnum kjörum. Fjárfestirinn fær þannig bæði hefðbundið vaxtaberandi skuldabréf og en getur einnig hagnast ef gengi félagsins hækkar. Alvotech lánar bréfin í gegnum dótturfélag Útboð Alvotech var sett upp þannig að skuldabréfafjárfestum var boðið upp á vörn gegn gengissveiflum strax við útgáfu. Dótturfélag Alvotech, Alvotech Manco, lánaði kaupendum breytanlegu skuldabréfanna hlutabréf í Alvotech sem þeir gátu selt á markaði til að verja sig gegn gengislækkun félagsins. Sjá einnig Gefa út breytanleg skuldabréf fyrir 12,6 milljarða Ef Acasta tók þátt í skuldabréfaútboðinu, eins og leiða má líkur að, er líklegt að skortstaðan byggist á hlutabréfum sem sjóðurinn fékk að láni frá Alvotech Manco, dótturfélagi Alvotech. Með öðrum orðum kann Alvotech sjálft, í gegnum dótturfélag sitt, að hafa lagt til þau hlutabréf sem gera Acasta kleift að halda úti skortstöðunni Staða Acasta í Alvotech tvíþætt Í reynd er breski sjóðurinn því með tvíþætta stöðu í Alvotech. Annars vegar eiga þeir breytanlegt skuldabréf sem ber vexti og veitir þeim rétt til að breyta skuldinni í hlutabréf síðar. Sá réttur verður verðmætari ef gengi Alvotech hækkar. Hins vegar eru þeir með skortstöðu á móti þar sem þeir hafa fengið bréf að láni, að öllum líkindum frá Alvotech Manco. Ef gengi Alvotech lækkar verður ódýrara fyrir Acasta að kaupa bréfin til baka og loka skortstöðunni, sem vinnur þá á móti lægra virði breytiréttarins. Þetta kallast delta-vörn. Markmið sjóðsins er því ekki endilega að veðja á lækkun hlutabréfanna, heldur að stýra þeirri hlutabréfaáhættu sem fylgir breytanlega skuldabréfinu. Wessman skuldbundinn til að kaupa bréfin til baka Eins og Viðskiptablaðið greindi frá á sínum tíma skuldbundu tveir af stærri hluthöfum Alvotech, ATP Holdings ehf. (í eigu Aztiq, fjárfestingafélags Róbert Wessman) og Alvogen Lux Holdings s.á.r.l., sig til að kaupa hlutabréfin sem dótturfélag Alvotech lánaði skuldabréfafjárfestum í tengslum við útboðið. Þannig var skuldabréfafjárfestum gert kleift að fá hlutabréf að láni og selja þau á markaði til að verja sig gegn gengissveiflum. Róbert Wessman, stofnandi og forstjóri Alvotech © Eyþór Árnason (Eyþór Árnason) Ekki hefur verið staðfest að Acasta hafi tekið þátt í skuldabréfaútboði Alvotech eða að skortstaðan sé beint komin til vegna þeirrar útgáfu. Miðað við fjárfestingarstefnu sjóðsins, heimildir Viðskiptablaðsins og uppsetningu skuldabréfaútboðsins er það þó nærtækasta skýringin. Sjá einnig Breskur sjóður með milljarðs skortstöðu í Alvotech