Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Nýtt björgunarskip komið í heimahöfn á Vopnafirði

Read Full Article →

Innlent | mbl | 15.6.2026 | 8:51 Nýtt björgunarskip komið í heimahöfn á Vopnafirði Björgunarskipið Sveinbjörn Sveinsson. Ljósmynd/Landsbjörg Setja bókamerki Í gær kom björgunarskipið Sveinbjörn Sveinsson, það sjöunda í röð nýrra björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar, til heimahafnar á Vopnafirði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu en þar segir að áhöfn skipsins hafi siglt frá Reykjavík upp úr hádegi á föstudag og eftir um 7 tíma siglingu var komið á Patreksfjörð þar sem gist var um borð í nýja skipinu og Verði II. Áhöfnin hreppti leiðindaveður fyrir Látrabjarg, töluverða öldu, en skipstjórinn, Magni Hjálmarsson var yfir sig ánægður með skipið. „Þarna sáum við hvað þetta eru góð skip, þrátt fyrir leiðindabrælu fór vel um alla og skipið sýndi okkur hvers það er megnugt,“ sagði hann. Sveinbjörn Sveinsson er eins og áður segir sjöunda skipið í nýsmíðaverkefni Slysavarnafélagsins Landsbjargar Ljósmynd/Landsbjörg Morguninn eftir var lagt snemma af stað, rétt um hálf sex og haldið áfram til Ísafjarðar þar sem áhöfn björgunarskipsins Guðmundar í Tungu kom og sigldi til móts við skipið. Eftir stutt stopp á Ísafirði var enn á ný lagt af stað, nú lá leiðin til Siglufjarðar, þar sem enn eitt skipið úr nýjum flota félagsins tók á móti Sveinbirni, en Sigurvin kom út Siglufjörð til móts við Sveinbjörn og fylgdi honum til hafnar á Siglufirði. Á laugardaginn var svo haldið frá Siglufirði og stefnan sett á Þórshöfn. Þangað var komið um kvöldmatarleytið þar sem heimamönnum gafst tækifæri til að skoða skipið. Í gærmorgun var farið frá Þórshöfn um hálf átta leytið og siglt rólega fyrir Langanesið og renndi Sveinbjörn svo inn á Vopnafjörð klukkan 12, þegar móttökuathöfnin hófst. Sóknarpresturinn blessaði skipið Séra María Guðrún Ljungberg sóknarprestur blessaði skipið og Borghildur Sverrisdóttir afhenti skipstjóra og formanni Björgunarbátasjóðs Vopnafjarðar sjóferðabænina á skildi, til varðveislu um borð. Séra María Guðrún Ljungberg sóknarprestur blessaði skipið. Ljósmynd/Landsbjörg Sveinbjörn Sveinsson er eins og áður segir sjöunda skipið í nýsmíðaverkefni Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Áður eru komin til landsins Guðmundur í Tungu á Ísafirði, Ingibjörg á Höfn í Hornafirði, Björg á Rifi, Jóhannes Briem í Reykjavík, Sigurvin á Siglufirði og Þór í Vestmannaeyjum. Áttunda skipið er svo væntanlegt í haust, þegar Unnur kemur til landsins en heimahöfn hennar verður á Patreksfirði. Smíði þess níunda er hafin, en það skip leysir af hólmi Hafbjörgina sem er í Neskaupstað. Þá er eftir að endurnýja 4 skip, á Raufarhöfn, Skagaströnd, Sandgerði og Grindavík. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Nýtt björgunarskip komið í heimahöfn á Vopnafirði Byrjar HM frábærlega og Arsenal setur sig í samband Bannar samfélagsmiðla fyrir yngri en 16 ára Ætla ekki að draga herlið sitt frá Líbanon, Sýrlandi og Gasa Svíinn neitaði að fagna en lét svo gleðina í ljós á HM Umræðan Fatlað fólk í samgönguáætlun Pakkaferðin Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Leynd yfir samskiptum aflétt með úrskurði Læknir og dýralæknir rífa í stálið í Litáen Ríkið sakað um að brjóta samkomulag Mest lesið Í gær Í vikunni Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Ríkið sakað um að brjóta samkomulag Myndskeið: Kötturinn Rambó elskar að fara í sturtu Fleiri andvígir en fylgjandi Degi sem varaformanni Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Besta veðrið norðaustan- og austanlands Komst í kynni við blóðsugur og köngulær Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Full ástæða til þess að vera á varðbergi Fjölmennasta útskrift í sögu skólans Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Færa kóða á gult: Hrinan líklega sú kröftugasta Strætó illa farinn eftir árekstur Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Full ástæða til þess að vera á varðbergi „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ „Ég var í nýjum skóm í barnastærð“ Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Þrír slösuðust í árekstri á Norðurlandi Óku á göngugötu í miðbænum Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Óttast er að hundruð missi vinnuna Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » Nýtt björgunarskip komið í heimahöfn á Vopnafirði Byrjar HM frábærlega og Arsenal setur sig í samband Bannar samfélagsmiðla fyrir yngri en 16 ára Ætla ekki að draga herlið sitt frá Líbanon, Sýrlandi og Gasa Svíinn neitaði að fagna en lét svo gleðina í ljós á HM Umræðan Fatlað fólk í samgönguáætlun Pakkaferðin Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Full ástæða til þess að vera á varðbergi Markakóngurinn féll út um glugga Fleiri andvígir en fylgjandi Degi sem varaformanni Ráðherra setur reglur um síma Mest lesið Í gær Í vikunni Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Ríkið sakað um að brjóta samkomulag Myndskeið: Kötturinn Rambó elskar að fara í sturtu Fleiri andvígir en fylgjandi Degi sem varaformanni Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Besta veðrið norðaustan- og austanlands Komst í kynni við blóðsugur og köngulær Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Full ástæða til þess að vera á varðbergi Fjölmennasta útskrift í sögu skólans Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Færa kóða á gult: Hrinan líklega sú kröftugasta Strætó illa farinn eftir árekstur Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Full ástæða til þess að vera á varðbergi „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ „Ég var í nýjum skóm í barnastærð“ Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Þrír slösuðust í árekstri á Norðurlandi Óku á göngugötu í miðbænum Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Óttast er að hundruð missi vinnuna Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum

Share this article