Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sjöunda björgunarskipið af þrettán komið heim

Read Full Article →

Björgunarskipið Sveinbjörn Sveinsson kom til heimahafnar í Vopnafirði á sunnudag og var vel tekið af heimamönnum eftir nær tveggja daga siglingu frá Reykjavík. Björgunarskipið er það sjöunda í röðinni af alls 10 skipum í endurnýjunarátaki Slysavarnafélagsins Landsbjargar, björgunarsveita og björgunarskipasjóða vítt og breitt um landið. Ríkið hefur skuldbundið sig til þess að greiða helming í alls tíu skipum á móti framlagi björgunarskipasjóða björgunarsveitanna. Planið er engu að síður að skipin verði alls þrettán þegar yfir er staðið og vonast forsvarsmenn björgunarmála á landinu að viðræður við ríkið leiði til farsællar lausnar og aðkomu þess. Áhöfn Sveinbjörns Sveinssonar sigldi frá Reykjavík upp úr hádegi á föstudag og eftir um sjö tíma siglingu var komið á Patreksfjörð þar sem gist var um borð í nýja skipinu og Verði II. Áhöfnin hreppti leiðindaveður fyrir Látrabjargi, töluverða öldu, en skipstjórinn Magni Hjálmarsson var yfir sig ánægður með skipið. „Þarna sáum við hvað þetta eru góð skip, þrátt fyrir leiðindabrælu fór vel um alla og skipið sýndi okkur hvers það er megnugt.“ Mótttökuathöfn og skipið blessað Morguninn eftir var lagt snemma af stað, rétt um hálfsex, og haldið áfram til Ísafjarðar þar sem áhöfn björgunarskipsins Guðmundar í Tungu kom og sigldi til móts við skipið. Eftir stutt stopp á Ísafirði var enn á ný lagt af stað. Nýju björgunarskipin er hraðsigld og ná allt að 60 km/klst. Mynd/Eva Björk Nú lá leiðin til Siglufjarðar, þar sem enn eitt skipið úr nýjum flota félagsins tók á móti Sveinbirni, en Sigurvin kom út Siglufjörð til móts við Sveinbjörn og fylgdi honum til hafnar á Siglufirði. Klukkan 15 á laugardag var svo haldið frá Siglufirði og stefnan sett á Þórshöfn. Þangað var komið um kvöldmatarleytið þar sem heimamönnum gafst tækifæri til að skoða skipið. Á sunnudagsmorgun var farið frá Þórshöfn um hálf áttaleytið og siglt rólega fyrir Langanesið. Renndi Sveinbjörn svo inn á Vopnafjörð klukkan 12, þegar móttökuathöfnin hófst. Séra María Guðrún Ljungberg sóknarprestur blessaði skipið og Borghildur Sverrisdóttir afhenti skipstjóra og formanni Björgunarbátasjóðs Vopnafjarðar sjóferðabænina á skildi, til varðveislu um borð. Sveinbirni fylgt inn síðasta spölinn til Vopnafjarðar. Mynd/Landsbjörg Raufarhöfn, Skagaströnd, Sandgerði og Grindavík næst Sveinbjörn Sveinsson er eins og áður segir sjöunda skipið í nýsmíðaverkefni Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Áður eru komin til landsins Guðmundur í Tungu á Ísafirði, Ingibjörg á Höfn í Hornafirði, Björg á Rifi, Jóhannes Briem í Reykjavík, Sigurvin á Siglufirði og Þór í Vestmannaeyjum. Áttunda skipið er svo væntanlegt í haust þegar Vörður II kemur til landsins, en heimahöfn hans verður á Patreksfirði. Smíði þess níunda er hafin, en það skip leysir af hólmi Hafbjörgina sem er í Neskaupstað. Þá er eftir að endurnýja fjögur skip, á Raufarhöfn, Skagaströnd, Sandgerði og Grindavík. Fyrsta skipið í endurnýjunarfasanum var Þór í Vestmannaeyjum, sem afhentur var í október 2022. Í framhaldinu var björgunarsveitum á Siglufirði, í Reykjavík, á Rifi, í Hornafirði og á Ísafirði afhent skip. Í haust er áætlað að Vörður II verði afhentur björgunarsveitinni á Patreksfirði. Ungir sem aldnir voru áhugasamir um nýtt björgunarskip Vopnfirðinga þegar það kom heim sl. sunnudag. Mynd/Landsbjörg Það verður þá áttunda skipið í endurnýjunarfasanum. Þá er eftir að semja um smíði á fimm björgunarskipum við finnsku skipasmíðastöðina Kewatec. Áætlað er að þau fari til Neskaupstaðar, Skagastrandar, Sandgerðis, Raufarhafnar og Grindavíkur. Allt að 60 km ganghraði Nýju björgunarskipin eru knúin áfram af tveimur öflugum Scaniavélum sem geta komið þeim á allt að 32 hnúta, eða um 60 km/klst. Gert er ráð fyrir allt að 6 áhafnarmeðlimum í fjaðrandi sætum. Skipin hafa getu til að bjarga allt að 60 manns í ýtrustu neyð, en pláss er fyrir 40 inni í skipinu. Skipin eru að sjálfsögðu sjálfréttandi og búin nýjustu siglingartækjum til leitar og björgunarstarfa. Kostnaður við hvert skip hingað komið er ríflega þrjú hundruð milljónir króna. Heildarkostnaður við að endurnýja öll 13 skip Slysavarnafélagsins Landsbjargar verður því um 4 milljarðar króna. Enn vantar rúma tvo milljarða til fullfjármagna verkefnið. Ríkið greiðir helming í fyrstu tíu skipunum, Slysavarnafélagið fjórðung og björgunarskipasjóðir fjórðung. Viðræður standa til við ríkisvaldið um áframhaldandi þátttöku þess í þeim þremur skipum sem eftir standa. Skrifað undir samning á níunda skipinu „Gleðitíðindin eru reyndar þau að við höfum skrifað undir samning við finnsku skipasmíðastöðina Kewatec um smíði á skipi númer 9, sem áætlað er að komi til Neskaupstaðar vorið 2027. Með framhaldið eftir það má segja að það séu ýmisleg samtöl í gangi en ekkert fast í hendi,“ segir Björn Jóhann Gunnarsson, verkefnisstjóri sjóbjörgunar hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Raðsmíðasamningur Landsbjargar við Kewatec kveður á um að eitt björgunarskip verði smíðað á ári. Á næsta ári þarf því að skrifa undir samning um smíði á tíunda skipinu sem áætlað er að fari til Skagastrandar. „Þetta hefur gengið ágætlega og við höfum getað tekið tvö ný skip á ári að undanförnu en núna þurfum við að hægja á okkur vegna fjármögnunar. Við förum niður í eitt skip á ári. Svo verðum við bara að sjá hvert framhaldið verður. Við eigum gott fólk að víða um land en við vitum ekki hvað framtíðin ber í skauti sér í þessum málum,“ segir Björn Jóhann.

Share this article