Security News

Cybersecurity news aggregator

🏥
INFO News Mbl Innlent

Þörf á þúsundum blóðgjafa kalli eftir „blóðbyltingu“

  • What: Increased need for blood donors after new blood donations
  • Impact: Blood bank seeking more donors
Read Full Article →

Innlent | mbl | 15.6.2026 | 10:46 | Uppfært 11:29 Þörf á þúsundum blóðgjafa kalli eftir „blóðbyltingu“ Ólafur segir að auka þurfi skilning á mikilvægi þess að heilbrigðir einstaklingar leggist á árarnar og gefi af sér lífgjöf. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Ólafur Helgi Kjartansson, stjórnarmaður í Blóðgjafafélagi Íslands, vekur í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag athygli á vaxandi þörf Blóðbankans eftir nýjum blóðgjöfum sem sinnt geta brýnni blóðþörf sjúkra, og kallar í því skyni eftir „blóðbyltingu“ og vitundarvakningu meðal landsmanna til þess að mæta þeirri þörf. „Fyrirsögninni er ætlað að hrópa á lesandann og fá athygli á þá miklu þörf sem er vaxandi, að fá fleiri blóðgjafa. Okkur vantar liðsauka í þann hóp sem fyrir er og stendur undir flæði blóðs inn í heilbrigðiskerfið. Lauslega vantar um 2.500 nýja blóðgjafa til þess að ávallt séu fyrir hendi nægar birgðir blóðs. Beinum augum okkar að þeim sem þurfa blóðgjafir til þess að ná heilsu eða viðhaldi hennar. Blóðgjafir byrja oft við komu barna í heiminn til þess að tryggja líf þeirra og heilbrigði.“ Til þess þurfi sterkan stuðning viljugra blóðgjafa, sem reiðubúnir séu að gefa lífgjöf til góðs. „Nýburar eru í mörgum tilvikum háðir því að á hinum endanum séu veitendur þegar blóðir rennur í pokann sem síðar er nýttur til gjafar þeim sem þurfa. Auka þarf skilning á mikilvægi þess að heilbrigðir einstaklingar, konur og karlar, leggist á árarnar og gefi af sér lífgjöf.“ Lauslega vantar um 2.500 nýja blóðgjafa til þess að ávallt séu fyrir hendi nægar birgðir blóðs að sögn Ólafs. mbl.is/Eggert Jóhannesson Svarað ófáum neyðarköllum í gegnum tíðina Þá segir Ólafur marga fleiri þarfnast blóðgjafar en hvítvoðungana. „Þau sem berjast við krabbamein eiga oft á tíðum allt undir að nægt blóð sé til reiðu. Aðrir sjúkdómar kalla einnig á sterkan og viljugan hóp sjálfboðaliða sem eru reiðubúnir að sinna þessum mikilvæga þætti heilbrigðiskerfisins. Ekki má gleyma slysum og eru dæmi þess að þurft hafi meira en hundrað blóðgjafa til þess að bjarga slösuðum manni eftir bílslys.“ Dæmi séu einnig um að þurft hafi gríðarlega mikið blóð eftir stunguárás. „Í þeim tilvikum sem hér er vísað til sendi Blóðbankinn út neyðarkall og brugðust margir vel og snöggt við, sem betur fer. Að sjálfsögðu er best að blóðbirgðir séu ávallt nægar og neyðarhróp þurfi ekki að koma til. Nú vantar nýja blóðgjafa og er því ætlunin að vekja heilbrigða til vitundar um að það að gerast blóðgjafi er nánast alltaf létt verk. Þess varð vart í þrengingum atvinnulífs á árunum eftir hrun að erfiðar gekk að fá leyfi til þess að skreppa úr vinnu til að gefa blóð.“ „Ísland þarf byltingu“ Það komi því margir að málefninu, bæði launþegar og vinnuveitendur, og höfðað sé með pistlinum til samvisku allra sem hlut eigi að máli. „Ísland þarf byltingu, ef svo má að orði komast. Það er að renna upp sá tími að hennar sé þörf. Tími Blóðbyltingarinnar er að nálgast, og tilefnið er vaxandi þörf fyrir blóð og blóðgjafa. Það vantar byltingarmenn. Þeir verða blóðgjafar framtíðarinnar og styðja sjúka og aðra blóðþega sem ekki geta komist af án þess að fá blóð í lækningarskyni. Í þessum efnum sé treyst á gjafmildi fólks sem vilji láta gott af sér leiða fyrir samfélagið. „Ef til vill má segja að um sé að ræða samfélagsskyldu. Og sem fyrr segir er hún létt og auðveld heilbrigðu fólki. Blóðbankinn safnar blóði í Turninum í Kringlunni, nánar tiltekið á 5. hæð í Norðurturninum. Á léttu nótunum má benda á að samþætta má verslunarferð og blóðgjöf. Engin vandræði eru að fá bílastæði.“ Sífellt unnið að því að auðvelda blóðgjöf Ólafur segir það rétt að beina þeirri áskorun til ungs fólks að gerast blóðgjafar og byltingarmenn. „Það þarf hreinlega byltingu til þess að ná markmiðum um fjölgun blóðgjafa. Tekinn hefur verið í notkun nýr minni og léttari blóðgjafarbíll sem staðsettur er í höfuðstað Norðurlands, Akureyri, og gefur færi á því að fara í blóðsöfnunarferðir nyrðra. Auk þess fer sá gamli í söfnunarferðir hér syðra. Það er sífellt verið að vinna að því marki að gera það auðveldara að fara og gefa blóð, sem alltaf er til góðs, og sé fólk einhverra aðstæðna vegna ekki fært um að gefa blóð sjálft er bent á að fá aðra til þess að sinna því í þess stað. En við þurfum góðvild og gjafmildi til þess að hrinda af stað blóðbyltingu, sem reyndar er eina byltingin sem höfundur hefur hvatt til, en þörfin er brýn. Hugsum okkur nýfætt barn sem vantar blóðgjöf, slasað fólk sem sárlega þarfnast blóðs til að halda lífi, krabbameinssjúka sem verða að fá blóð til að lifa og þá sem vegna aðgerða þurfa blóð. Með þetta í huga skulum við gerast byltingarmenn og hvetja alla sem það geta til að slást í hóp blóðgjafa og létta óþekktum þiggjendum lífið. Það er létt að bjarga lífi með því að gerast blóðgjafi. Gerum það.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Formaðurinn veikur heima í atkvæðagreiðslu Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Genginn í raðir Tindastóls Óvenjumargir óku inn Austurstrætið Mjög lítil skjálftavirkni seinasta sólarhringinn Umræðan Fatlað fólk í samgönguáætlun Pakkaferðin Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þinglok nálgast nú óðfluga Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Samkomulagi náð: „Ræsið vélarnar“ Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Mest lesið Í gær Í vikunni Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Ríkið sakað um að brjóta samkomulag Ráðherra setur reglur um síma Myndskeið: Kötturinn Rambó elskar að fara í sturtu Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Vill fá íbúðir fyrir ofan Dönsku krána Fleiri andvígir en fylgjandi Degi sem varaformanni Besta veðrið norðaustan- og austanlands Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Komst í kynni við blóðsugur og köngulær Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Færa kóða á gult: Hrinan líklega sú kröftugasta Strætó illa farinn eftir árekstur Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Full ástæða til þess að vera á varðbergi „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ „Ég var í nýjum skóm í barnastærð“ Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Þrír slösuðust í árekstri á Norðurlandi Óku á göngugötu í miðbænum Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » Formaðurinn veikur heima í atkvæðagreiðslu Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Genginn í raðir Tindastóls Óvenjumargir óku inn Austurstrætið Mjög lítil skjálftavirkni seinasta sólarhringinn Umræðan Fatlað fólk í samgönguáætlun Pakkaferðin Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þinglok nálgast nú óðfluga Full ástæða til þess að vera á varðbergi Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Ráðherra setur reglur um síma Mest lesið Í gær Í vikunni Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Ríkið sakað um að brjóta samkomulag Ráðherra setur reglur um síma Myndskeið: Kötturinn Rambó elskar að fara í sturtu Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Vill fá íbúðir fyrir ofan Dönsku krána Fleiri andvígir en fylgjandi Degi sem varaformanni Besta veðrið norðaustan- og austanlands Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Komst í kynni við blóðsugur og köngulær Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Færa kóða á gult: Hrinan líklega sú kröftugasta Strætó illa farinn eftir árekstur Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Full ástæða til þess að vera á varðbergi „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ „Ég var í nýjum skóm í barnastærð“ Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Þrír slösuðust í árekstri á Norðurlandi Óku á göngugötu í miðbænum Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum

Share this article