Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Grásleppu laumað á dagskrá þingsins

Read Full Article →

Óánægja er meðal stjórnarandstöðunnar á þingi eftir að frumvarp Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur um grásleppu var bætt við dagskrá þingsins í dag. Þingmenn Miðflokksins segjast hafa staðið í þeirri trú að málið væri enn til umræðu í atvinnuveganefnd. Frumvarpið gengur út á að taka afnema kvótasetningu grásleppu en veiðar á þessum fiski voru settar í aflamarkskerfið á síðasta kjörtímabili og varð til þess að Lilja Rafney sagði sig úr VG. Lilja Rafney lagði frumvarpið fram á síðasta þingi en það varð ekki að lögum en framgangur þess hefur verið hraðari á þessu þingi. Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, vakti athygli á því við upphaf þingfundar að búið væri að setja málið aftast á dagskrá þingfundar í dag, án samráðs við þingflokksformenn. Sagðist hún hafa staðið í þeirri trú að ekki yrðu frekari umræður um málið fyrr en búið væri að leita álits Lagastofnunar HÍ um áhrif frumvarpsins. „Þetta virðist vera eitthvert munstur sem á bara við mál frá Flokki fólksins, ákaflega furðulegt.“ Bergþór Ólason, fulltrúi Miðflokksins í nefndinni, segir í færslu á Facebook að óskað hafi verið eftir téðu áliti 3. febrúar og hafi enginn fulltrúi í nefndinni lagst gegn því. Ekki verði annað séð að verið sé að þvinga málinu í gegn til að þjóna sérhagsmunum Flokks fólksins. „Þess skal líka haldið til haga að þetta mál er þingmannamál Lilju Rafneyjar, formanns atvinnuveganefndar – ekki stjórnarfrumvarp sem unnið er í ráðuneyti. Þingmannamál hafa ekki farið í gegnum nálarauga þess undirbúnings sem stjórnarfrumvörp þurfa að gera. Það er því sérstök ástæða til að staldra við og vinna málið vel í nefnd því um er að ræða stórtæka breytingu sem mun hafa áhrif. En skynsemi, faglegheit og hagsmunir landsmanna mega sín lítils þegar halda þarf óstjórntækum Flokki fólksins góðum á ríkisstjórnarheimilinu.“ Fór Bergþór fram á það á þingi að málinu yrði vísað til forseta þingsins og að það yrði tekið af dagskrá. Ólafur Adolfsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, kvaddi sér einnig hljóðs og sagði að það hafi verið sameiginlegur skilningur þingmanna minnihlutans að málið færi ekki á dagská fyrr en álit Lagastofnunar lægi fyrir. Óskaði hann eftir fund með forseta vegna málsins. Eftir langar mótbærur stjórnarandstæðinga tilkynnti Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, að hún ætli að boða þingflokksformenn til fundar að loknum atkvæðagreiðslum.

Share this article