Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Náðu samkomulagi um grásleppu

Read Full Article →

Þingflokkarnir hafa náð saman um afgreiðslu á frumvarpi Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur og fleiri þingmanna um afnám kvótasetningar grásleppu. Vilji meirihlutans stóð til að klára málið í dag. Greiða átti atkvæði um frumvarpið strax að loknu hádegishléi og að málið færi til þriðju og síðustu umræðu síðar í dag. Þingmenn stjórnarandstöðunnar komu í röðum undir liðnum fundarstjórn forseta til að fordæma málsmeðferðina. Gerð voru ítrekuð hlé á þingfundi á meðan þingflokksformenn funduðu með forseta. Svo fór að atkvæði voru greidd um frumvarpið en meirhlutinn féllst á að frumvarpið fari ekki út úr nefnd fyrr en í mars, að lokinni kjördæmaviku. Björgvin Kolbeinsson / RÚV

Share this article