Íþróttir Íslenskir aðalverktakar valdir til að hanna og byggja þjóðarhöll Þjóðarhöll ehf. hefur gengið að tilboði Íslenskra aðalverktaka og samstarfsfyrirtækja þeirra um hönnun og byggingu þjóðarhallar í Laugardal. Tilboðið hljóðar upp á 16,8 milljarða króna. Brynjólfur Þór Guðmundsson 15. júní 2026 kl. 12:11, uppfært kl. 12:30 A A A Teikning af fyrirhugaðri þjóðarhöll. Aðsend – Þjóðarhöll ehf. Íslenskir aðalverktakar og samstarfsfyrirtæki þeirra sjá um hönnun og byggingu þjóðarhallar í Laugardal í Reykjavík. Þar á að verða framtíðaraðstaða fyrir íþróttakeppni og iðkun. Þjóðarhöll, sem heldur utan um verkefnið fyrir ríki og borg, gekk að tilboði Íslenskra aðalverktaka, ASK arkitekta, COWI, LPO arkitekta, Íslofts, EOH og Landhönnunar. Það hljóðar upp á 16,8 milljarða króna. Þau kepptu við Ístak og tengd fyrirtæki um verkefnið. Teikning af því hvernig Þjóðarhöllin gæti litið út á leikdegi. Aðsend / Þjóðarhöll ehf. Þrettán manna matsnefnd mat tilboðin á grundvelli 32 matsliða, þar á meðal til hönnunar, notagildis, útlits, frágangs, aðgengis, sjálfbærni og hagkvæmni. Myndband frá hönnuðum að ofan sem sýnir hvernig þjóðarhöllin myndi líta út. Þjóðarhallar hefur lengi verið beðið. Laugardalshöllin uppfyllir ekki kröfur til alþjóðlegrar keppni og hefur því þurft að leika landsleiki annars staðar. Þjóðarhöllin á að rísa sunnan Laugardalshallar og tengjast borgarlínu, göngu- og hjólaleiðum auk þeirra mannvirkja sem fyrir eru: Laugardalshallar og Frjálsíþróttahallar við hlið hennar. Teikning af því hvernig Þjóðarhöllin gæti litið út við hlið Laugardalshallar. Aðsend / Þjóðarhöll ehf. Samkvæmt tilkynningu frá Þjóðarhöll ehf. tekur nú við lögbundinn biðtími þar sem fyrirtækin sem buðu í verkið geta kynnt sér niðurstöðuna og gert athugasemdir eða kært hana áður en hægt er að ganga frá samningi. Veitingaaðstaða gæti verið með þessum hætti í anddyri þjóðarhallar. Aðsend / Þjóðarhöll ehf. Teikning af fyrirhuguðu útliti þjóðarhallar. Aðsend / Þjóðarhöll ehf. Teikning hönnuða af hugsanlegum körfuboltaleik. Aðsend / Þjóðarhöll ehf. Fréttin hefur verið uppfærð. Þjóðarhöll Vinnureglur um fréttir og dagskrárefni RÚV er óháð hagsmunum stjórnmála, viðskipta, opinberra aðila og einkaaðila. Fréttaflutningur og dagskrárgerð okkar byggist á trúverðugleika og óhlutdrægni. Starfsfólk RÚV starfar samkvæmt vinnureglum um fréttir og dagskrárefni. Meira frá RÚV Noregur Dómi yfir Høiby verður áfrýjað Reykjanesbær Líklega farið fram á gæsluvarðhald yfir tveimur vegna hnífstungu Fótbolti Grótta fordæmir hegðun stuðningsmanna Fylkis Menntamál Símafriður í grunnskólum á næstu grösum Bretland Bretar ætla að banna börnum innan 16 ára að vera á samfélagsmiðlum Ísafjarðarbær Segir mikilvægt að ísfirskar verslanir njóti góðs af komu skemmtferðaskipana Stríð í Mið-Austurlöndum Ræða saman í Doha áður en samkomulagið verður undirritað Mótorsport Langyngsti keppandinn smíðaði bleika tryllitækið Túttuna Innrás í Úkraínu Biður um aukinn stuðning eftir nýjustu árásir Rússa Mest lesið á RÚV.is 1 Heilsa Í nammibindindi í 14 ár 2 Stríð í Mið-Austurlöndum Friðarsamkomulag í höfn: Olíuverð tekið að lækka 3 Fjarskipti „Svaraði enginn“ þegar hann reyndi að hringja á sjúkrabíl 4 Bandaríkin Sigurgleðin fór úr böndunum 5 Noregur Marius Borg Høiby dæmdur í fjögurra ára fangelsi 6 Leit og björgun Laus af strandstað við Akurey Fleiri íþróttafréttir Fótbolti Grótta fordæmir hegðun stuðningsmanna Fylkis HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Fílabeinsströndin - Ekvador HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Svíþjóð - Túnis HM í fótbolta 2026 Í dag: Spánverjar mæta til leiks Mótorsport Langyngsti keppandinn smíðaði bleika tryllitækið Túttuna HM í fótbolta 2026 Svíar léku á als oddi gegn Túnis HM í fótbolta 2026 Japanar neituðu að gefast upp HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Holland – Japan Aðrir eru að lesa núna 1 Noregur Marius Borg Høiby dæmdur í fjögurra ára fangelsi 2 Ísafjarðarbær Segir mikilvægt að ísfirskar verslanir njóti góðs af komu skemmtferðaskipana 3 Stríð í Mið-Austurlöndum Ræða saman í Doha áður en samkomulagið verður undirritað 4 Innrás í Úkraínu Biður um aukinn stuðning eftir nýjustu árásir Rússa 5 Garðabær Klaustrið í Garðabæ í niðurníðslu og skapar slysahættu 6 HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Fílabeinsströndin - Ekvador