Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Íslenskir aðalverktakar valdir til að hanna og byggja þjóðarhöll

Read Full Article →

Íslenskir aðalverktakar og samstarfsfyrirtæki þeirra sjá um hönnun og byggingu þjóðarhallar í Laugardal í Reykjavík. Þar á að verða framtíðaraðstaða fyrir íþróttakeppni og iðkun. Þjóðarhöll, sem heldur utan um verkefnið fyrir ríki og borg, gekk að tilboði Íslenskra aðalverktaka, ASK arkitekta, COWI, LPO arkitekta, Íslofts, EOH og Landhönnunar. Það hljóðar upp á 16,8 milljarða króna. Þau kepptu við Ístak og tengd fyrirtæki um verkefnið. Þrettán manna matsnefnd mat tilboðin á grundvelli 32 matsliða, þar á meðal til hönnunar, notagildis, útlits, frágangs, aðgengis, sjálfbærni og hagkvæmni. Myndband frá hönnuðum að ofan sem sýnir hvernig þjóðarhöllin myndi líta út. Þjóðarhallar hefur lengi verið beðið. Laugardalshöllin uppfyllir ekki kröfur til alþjóðlegrar keppni og hefur því þurft að leika landsleiki annars staðar. Þjóðarhöllin á að rísa sunnan Laugardalshallar og tengjast borgarlínu, göngu- og hjólaleiðum auk þeirra mannvirkja sem fyrir eru: Laugardalshallar og Frjálsíþróttahallar við hlið hennar. Samkvæmt tilkynningu frá Þjóðarhöll ehf. tekur nú við lögbundinn biðtími þar sem fyrirtækin sem buðu í verkið geta kynnt sér niðurstöðuna og gert athugasemdir eða kært hana áður en hægt er að ganga frá samningi. Fréttin hefur verið uppfærð.

Share this article