Tilboð Íslenskra aðalverktaka um hönnun og byggingu nýrrar Þjóðarhallar í Laugardal hefur verið samþykkt. Tilboðið er að fjárhæð 16,8 milljarða króna. Tvö endanleg tilboð bárust í samkeppnisútboðinu og var hitt frá Ístak hf. Í lokavalinu stóð teymi Íslenskra aðalverktaka hf. ásamt ASK arkitektum, COWI, LPO arkitektum, Ísloft, EOH og Landhönnun uppi sem sigurvegari. Höllin mun rísa í hjarta Laugardals, sunnan Laugardalshallar. Mennta- og barnamálaráðuneytið fer með málið fyrir hönd ríkisins með aðkomu fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir annaðist útboðsferlið. „Ný Þjóðarhöll mun umbylta umgjörð í kringum landsliðsfólk í fjölmörgum íþróttagreinum, stórbæta aðstöðu fyrir börn og ungmenni og aðra íþróttaiðkendur auk þess að vera fjölnota hús fyrir þjóðina alla,” segir í tilkynningu Stjórnarráðs Íslands.