Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Úr sauðburðinum í stálið

Read Full Article →

Innlent | mbl | 15.6.2026 | 18:47 Úr sauðburðinum í stálið Metin hafa oftar en ekki riðað til falls þegar dýralæknirinn úr Borgarfirði gengur undir stöngina, nú síðast Evrópumet í St. Julians á Möltu í mars, en Kristín flýgur út til Litáen á HM í klassískum kraftlyftingum á fimmtudaginn, nýbúin að sóna hryssu og klár í harðan slag í -84 kg flokki. Ljósmynd/Kraft.is Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Ég var að sóna hryssu og kanna hvenær hún hefði egglos næst, hvenær hún væri að ganga eins og sagt er og hvenær hægt væri að halda henni við hest,“ segir Kristín Þórhallsdóttir, dýralæknir í Borgarfirði og ein öflugasta kraftlyftingakona landsins og þótt víðar væri leitað enda nýbakaður Evrópumeistari í annað skipti og á leið á heimsmeistaramótið í klassískum kraftlyftingum í Litáen sem þegar er hafið. Kristín ætlar sér stóra hluti í -84 kílógramma flokki á HM þótt hún sé nýkomin úr miklum önnum við sauðburðinn í vor sem dró orkuna í aðrar áttir en fram undan eru. „Bóndans hugur beinist að fleiru en bjástri við lömb og kýr,“ orti skáldið frá Fagraskógi í ljóði sínu um Bólu-Hjálmar og sannarlega á ljóðlínan vel við nú þegar Kristín brýnir sig fyrir átökin í Druskininkai í Litáen um helgina en hún gengur á hólm á laugardaginn. Frétt af mbl.is Læknir og dýralæknir rífa í stálið í Litáen „Þetta er rosalega þéttsetinn tími núna og maður er orðinn dálítið framlágur eftir sauðburðinn í maí og núna í júní byrjar ræktunarstarf hjá hrossum og geldingar, mikill erill og mikið hringt og maður er úti um allt á þeytingi og verður svolítið tættur,“ segir Kristín sem þó lætur engan bilbug á sér finna fyrir það verkefni hennar sem snýr að allt öðru en blessuðum skepnunum. Borgfirðingurinn á sér glæsilegan feril sem lesendur mbl.is hafa ekki farið varhluta af síðustu árin. Kristín hefur glímt við meiðsli annað veifið, orka hennar þorrið í sauðburði og barnauppeldi heimtað sitt en keppnisskapi hennar og við brugðið og andi íþróttamannsins brennur henni í brjósti. Ljósmynd/Kraft.is Beint flug, mataræði og vatnslosun „Síðasta mánuðinn fram að móti eru mjög þungar æfingar og maður er orðinn dálítið andlega bugaður á þessu tímabili, ég þarf að halda streitunni niðri líka svo þetta er alltaf erfiður tími en ég hef auðvitað gert þetta margoft áður,“ segir Kristín. Hún fer út á fimmtudagsmorgun, degi fyrr en hefðin segir til um þar sem á fimmtudaginn nær hún beinu flugi. „Það munar miklu að geta verið í sínu prógrammi varðandi mataræði, vatnslosun og þessa hluti sem maður er að gera og græja síðustu dagana fyrir mót,“ segir hún og kveðst bjartsýn fyrir mótið. Frétt af mbl.is Evrópumeistarinn æfir í hlöðunni heima hjá sér Eins og mbl.is greindi frá um helgina heltist bandaríska ofurkvendið Amanda Lawrence úr lestinni vegna meiðsla, margfaldur heimsmeistari sem haft hefur töglin og hagldirnar í -84 kg flokknum um árabil, en Kristín segir fjarveru hennar í Litáen ekki skipta öllu máli. „Það breytir svo sem engu fyrir mig, ég var fimmta inn á styrkleikum en er nú fjórða en samt sem áður er dálítið langt í þær sem eru fyrir ofan mig þannig að ég held að ég verði bara svolítið að halda mínu plani og svo verðum við bara að sjá til, það er ekki alveg innan seilingar að ég nái á pall en ég er samt upp á mitt besta núna, hef átt gríðarlega góða upplyftu og óskastaðan væri að ná persónulegri bætingu í samanlögðu og svo verður það bara að koma í ljós hverju það skilar mér en flokkurinn minn hefur aldrei verið jafn sterkur og margar að koma upp í flokkinn sem hafa verið í verðlaunasætum í næsta flokki fyrir neðan mig,“ segir dýralæknirinn. Kristín hefur keppt á ótal mótum. Hér eru verðlaunahafar í kraftlyftingakeppni kvenna á Reykjavíkurleikunum 2020. Frá vinstri: Arna Ösp Gunnarsdóttir, Kimberly Walford og Kristín. Þóra Hrönn Njálsdóttir Væntingavísitalan í botni Þú hlýtur þó að gera þér töluverðar væntingar eftir frábært gengi á Evrópumeistaramótinu í mars. „Auðvitað vill maður gera vel og að allt gangi upp eftir gríðarlega vinnu við undirbúning, maður vill fá uppskeru eins og maður hefur sáð og í þessum undirbúningi hefur ekkert verið mér til trafala nema miklar annar í vinnunni og maður gerir sér náttúrulega væntingar um að skila því á keppnispallinum og ná sér í einhverjar bætingar, maður er alltaf skúffaður þegar maður er búinn að leggja inn vinnuna og eitthvað klikkar á mótsdegi, dagsformið er auðvitað alltaf mismunandi,“ segir kraftlyftingakonan hreinskilnislega. Frétt af mbl.is Íslenski dýralæknirinn nýr Evrópumeistari Kristín segist mjög róleg fyrir mótið en samt sterk, líklega gráupplögð blanda. „Þegar ég keppti á EM var ég hæst að styrkleikum inn á það mót og maður setur pressu á sig þegar titill er innan seilingar. Það tókst þar en ef ég ætla að vera raunhæf núna þarf ég að eiga virkilega góðan dag og mótherjar mínir virkilega slæman dag svo ég nái á pall. Ég ætla bara að reyna mitt besta og fylgja mínu plani en maður verður að vera raunhæfur, ég ætla að fara afslöppuð inn á þetta mót, mér finnst það oft virka best fyrir mig,“ segir Kristín. Hvernig líst þér á íslenska keppendahópinn? Þið eruð sjö á þessu móti Íslendingarnir. Kristínu líst vel á en böggull fylgir skammrifi. „Við höfum öll farið saman í keppnisferð áður og þekkjumst mjög vel en mótið spannar heila viku, léttustu þyngdarflokkarnir byrja og ég er mjög oft að keppa á laugardegi seinni keppnishelgina og þá eru léttustu keppendurnir oft búnir að keppa svo stundum náum við ekki að hittast öll en við sem erum í þyngri flokkunum er vön því að vera saman úti mestallan tímann sem verið er að keppna. Oft er gott að hafa keppnisfélaga til að tala við á mótum, það dregur úr kvíða og stressi að vera með liðsfélaga sem maður getur spjallað við og dreift huganum þegar maður er í keppnisferðum,“ segir Kristín Þórhallsdóttir, dýralæknir í Borgarfirði og ein bjartasta von Íslands á alþjóðavettvangi kraftlyftinga síðustu ár og vonandi mörg ár til viðbótar. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ísak Bergmann og Agnes trúlofuð Úr sauðburðinum í stálið Crystal Palace ræður nýjan stjóra Verður áfram í Manchester Evrópumeistararnir misstigu sig í fyrsta leik Umræðan Fatlað fólk í samgönguáætlun Pakkaferðin Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Umfangsmikil árás gerð á Kænugarð Fjármálaáætlun samþykkt Ríkið sakað um að brjóta samkomulag Úr sauðburðinum í stálið Mest lesið Í gær Í vikunni Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Fátíður en sláandi atburður Erlendir ferðamenn lentu í árekstrinum Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Formaðurinn veikur heima í atkvæðagreiðslu Ráðherra setur reglur um síma Hver eru heildarlaun Hildar borgarstjóra? Myndskeið: Svona mun ný Þjóðarhöll líta út Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Færa kóða á gult: Hrinan líklega sú kröftugasta Strætó illa farinn eftir árekstur Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Full ástæða til þess að vera á varðbergi „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ „Ég var í nýjum skóm í barnastærð“ Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Þrír slösuðust í árekstri á Norðurlandi Óku á göngugötu í miðbænum Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Meirapróf til að aka strumpastrætó Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » Ísak Bergmann og Agnes trúlofuð Úr sauðburðinum í stálið Crystal Palace ræður nýjan stjóra Verður áfram í Manchester Evrópumeistararnir misstigu sig í fyrsta leik Umræðan Fatlað fólk í samgönguáætlun Pakkaferðin Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aðgerðaáætlun vegna heilabilunar Kristrún bíður enn fundar með Trump Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Myndskeið: Kötturinn Rambó elskar að fara í sturtu Mest lesið Í gær Í vikunni Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Fátíður en sláandi atburður Erlendir ferðamenn lentu í árekstrinum Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Formaðurinn veikur heima í atkvæðagreiðslu Ráðherra setur reglur um síma Hver eru heildarlaun Hildar borgarstjóra? Myndskeið: Svona mun ný Þjóðarhöll líta út Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Færa kóða á gult: Hrinan líklega sú kröftugasta Strætó illa farinn eftir árekstur Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Full ástæða til þess að vera á varðbergi „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ „Ég var í nýjum skóm í barnastærð“ Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Þrír slösuðust í árekstri á Norðurlandi Óku á göngugötu í miðbænum Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Meirapróf til að aka strumpastrætó Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum

Share this article