Kristín tók 215 kíló í hnébeygju en vegna axlarmeiðsla náði hún ekki að lyfta eins þungt og hún hefði viljað í bekkpressunni en þar fór hún þó upp með 125 og hálft kíló. Hún tryggði sér svo Evrópumeistaratitilinn í samanlögðu með því að lyfta 230 kílóum í réttstöðulyftu og vann alls þrenn gullverðlaun á EM. Kristín varð einnig Evrópumeistari árið 2021 í samanlögðu og vann silfur á HM árið 2023. Góð uppskera eftir langvinn meiðsli „Ég var búin að vera meidd frá því í lok ársins 2023 og allt árið á eftir og í raun alveg þar til í byrjun síðasta árs. Þannig ég þurfti að sleppa mörgum alþjóðlegum mótum á þessu langa meiðslatímabili,“ segir Kristín en hún hitti RÚV í æfingaðstöðu Breiðabliks í Digranesi í gær. Þar æfir hún einu sinni í viku, en alla jafna æfir hún á Akranesi eða í heimatilbúinni aðstöðu í Borgarfirði. Kristín Þórhallsdóttir varð um helgina Evrópumeistari í klassískum kraflyftingum þegar hún vann -84 kílóa flokkinn. Hún er 18 árum eldri en sú sem vann silfrið. Kristín sem er dýralæknir ætlar ekki að láta sauðburð setja strik í reikninginn fyrir HM. „Eftir endurhæfingu þar sem ég var að ná upp styrk og komast í gegnum meiðslum tók ég svo þátt á Íslandsmótinu í október. Það var fyrsta mótið mitt eftir að ég hafði náð mér góðri og átti mjög gott mót. Ég var bara tíu kílóum þar frá mínum besta árangri og var skráð inn á EM um helgina með tölurnar frá Íslandsmótinu. Þegar skráningarnir lágu fyrir var ég efst með mínar tölur, þannig að þá fór ég í að stilla markmiðin fyrir mótið og stefndi á að vinna þyngdarflokkinn minn,“ segir Kristín. 18 árum eldri en sú sem vann silfrið Kristín varð nýlega 42 ára en sú sem vann silfur í hennar þyngdarflokki á EM er 24 ára, eða 18 árum yngri. „Ég pæli nú lítið í þessu en það eru alltaf einhverjir að gera létt grín að því að ég sé sú gamla í hópnum. En ég er auðvitað bara mjög stolt af mér að vera að hafa ennþá roð í þessar stelpur sem eru mikið yngri og ættu líffræðilega að vera í því að toppa á meðan ég ætti samkvæmt öllum skilgreiningum að vera ólíklegri til þess. En ég finn að ég á enn nóg inni.“ En hver er lykillinn að því að vera orðin 42 ára og vera sú besta í Evrópu? „Þetta er stór spurning. Ég hef kannski ekki svarið, en ég legg auðvitað mjög hart að mér og læt þetta ganga upp. Ég er náttúrulega í fullri vinnu og á börn og hef um ýmislegt annað en kraftlyftingarnar að hugsa um,“ segir Kristín sem starfar sem dýralæknir. Erfitt að tvinna saman líkamlega erfiða vinnu og kraftlyftingarnar „Ég er stórgripa dýralæknir og vinn mikið með stórgripi. Það er líka líkamlega erfið vinna og tekur oft mikið úr mér. Þannig stundum er það erfitt að tvinna þetta saman að æfa svona íþrótt og vinna líkamlega erfiða vinnu.“ Næsta stóra mót hjá Kristínu er heimsmeistaramótið í júní og þar stefnir hún líka hátt. „Markmiðið er að blanda sér í toppbaráttuna þar. Draumurinn er auðvitað að komast á verðlaunapall og líka komast á pall í einstökum greinum,“ segir Kristín. En mun það eitthvað trufla undirbúninginn fyrir HM í júní þegar sauðburður hefst? „Ég hef nú gert þetta áður því HM er alltaf í júní og þetta er stundum flókið. En ég hef látið þetta ganga áður og ég mun bara láta þetta ganga líka núna,“ segir Kristín Þórhallsdóttir Evrópumeistari í -84 kílóa flokki í klassískum kraftlyftingum.