Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
LOW News Viðskiptablaðið

Matar- og drykkjarverð lækkað meira á Íslandi

  • What: Food and drink prices have dropped more in Iceland than in Finland and Sweden
  • Impact: May affect consumer spending
Read Full Article →

Verð á mat- og drykkjarvöru hefur lækkað meira í hlutfalli við almennt verðlag á Íslandi heldur en í Finnlandi og Svíþjóð frá því að síðarnefndu tvær þjóðirnar gengu inn í Evrópusambandið árið 1995. Konráð Guðjónsson hagfræðingur bendir á þetta í færslu á X. Tilefnið er málflutningur ýmissa stuðningsmanna Evrópusambandsins um að innganga í ESB stuðli að lægra matvöruverði. Þeir hafa þannig vísað í greinargerð Hagfræðistofnunar HÍ um áhrif Evrópusambandsaðildar þar sem fram kemur að hlutfallslegt verð á matvörum í Finnlandi og Svíþjóð hafi lækkað um 25-30% á fyrsta áratugnum frá inngöngu í ESB, en á Íslandi og í Noregi hækkaði það ýmist eða lækkaði um nokkur prósent. Konráð bendir hins vegar á að greinargerðin fyrrnefnda geti gefið villandi upplýsingar hlutverk ESB í lækkunum á matvöru- og drykkjarverði sem urðu á tímanum. Þar vísar hann í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands frá 2009 sem greinargerðin er meðal annars unnin upp úr. Í greinargerðinni er bent á lækkun matvöruverðs í Finnlandi og Svíþjóð miðað við matvöruverð á Íslandi frá 1990 til aldamóta. Konráð bendir á að megindrifkraftur lækkunarinnar skýrist af gengisfalli gjaldmiðla Finnlands og Svíþjóðar en ekki inngöngu í Evrópusambandið: „Það sem gleymist er að nánast öll þessi breyting verður áður en Finnland og Svíþjóð ganga í ESB sem er einfaldlega vegna þess að gengi gjaldmiðla þeirra féllu í verði” Konráð deildi meðfylgjandi mynd á samfélagsmiðlinum X. Konráð bendir til að mynda á að gengi sænsku krónunnar hafi fallið um 20% á tveimur árum gagnvart þýska markinu. Konráð segir að séu hlutirnir settir í samhengi við almenna verðbólgu og innlent verðlag fáist skýrari mælikvarði og áhrifin virðast vera nær 10% en 25-30%. „Verð á matvælum, miðað við hlutfallsleg verð innanlands, hefur lækkað meira á 20 árum á Íslandi heldur en það gerði í Finnlandi og Svíþjóð. Á svo löngum tíma getur hins vegar ýmislegt annað en ESB haft áhrif.” Aðspurður um áhrif inngöngu Íslands í ESB á matvælaverð segir Konráð að lækkun tolla, með inngöngu í ESB eða ekki, myndi vissulega hafa í för með sér lækkun verðlags en óvíst sé af hvaða stærðargráðu sú lækkun væri. „Við værum með því mögulega að taka ákvörðun um að styrkja landbúnað enn meira með beinum styrkjum eða hreinlega draga eitthvað úr honum af því að hann gæti að óbreyttu ekki keppt við landbúnaðinn á meginlandinu þar sem aðstæður eru miklu hagfelldari.” Meðal þeirra sem hafa vitnað reglulega í framangreindan kafla greinargerðarinnar er Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar. Í eldhúsdagsræðu sinni í síðustu viku hélt hann því fram að matarkarfan myndi lækka í verði. „Oftast þegar ég geri pítsur heima þá geri ég fjórar litlar pítsur. Ef við göngum í Evrópusambandið þá mun ég hafa efni á fimm litlum pítsum fyrir sama verð,“ sagði Pawel í eldhúsdagsumræðum á miðvikudaginn síðasta. Óska eftir: Gögnum sem styðja að matvælaverð hafi lækkað um 25% þegar Finnar og Svíar gengu í ESB. Mynd fyrir athygli pic.twitter.com/KW1miIQqdK — Konráð S. Guðjónsson (@konradgudjons) June 15, 2026

Share this article