Íranar komu í veg fyrir fyrsta sigur Nýja Sjálands á heimsmeistaramóti í fótbolta karla með því að knýja fram 2:2 jafntefli. Liðin spila í G-riðli mótsins þar sem öll hafa fengið eitt stig að lokinni fyrstu umferð. Nýsjálendingurinn Elijah Just skoraði strax á sjöundu mínútu leiksins og Ramin Rezaeian jafnaði 25 mínútum síðar. Just var aftur að verki á 54. mínútu leiksins, en Adam var ekki lengi í Paradís því Mohammad Mohebbi skoraði jöfnunarmark Írana með skalla eftir fyrirgjöf frá Rezaeian. Hann var valinn maður leiksins. Nýsjálendingar mæta Egyptum 21. júní en Íranar keppa við Belga.