Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fyrsti sigur Egypta á HM í fótbolta

Read Full Article →

Egyptar unnu Nýsjálendinga 3-1 í leik liðann í G-riðli í Vancouver í nótt. Nýsjálendingar stimpluðu sig inn í leikinn strax á 15. mínútu leiksins. Staðan var því 1-0 fyrir Nýsjálendingum í hálfleik, staða sem fæstir höfðu búist við því lið Egypta er af mörgum talið sterkara. Mostafa Zico skoraði svo fyrsta mark Egypta á 58. mínútu. Mohamed Salah skoraði næsta mark þeirra á 67. mínútu leiksins og Trezeguet skoraði það þriðja á 82. mínútu leiksins. Liðsmenn Egypta og stuðningsfólk í stúkunni fögnuðu sigri þeirra rækilega og ekki að ástæðulausu. Þetta er fyrsti sigur Egypta á heimsmeistaramóti karla í fótbolta en þjóðin keppir nú í 9. sinn á HM í fótbolta. Egyptar mæta næst Íran á laugardaginn. Nýsjálendingar mæta Belgum einnig á laugardag. Egyptar eru á toppnum í G-riðli með 4 stig og eru því búnir að koma sér í góða stöðu á mótinu.

Share this article