Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Enn eitt jafnteflið: Íranar og Nýsjálendingar deildu hlut í síðari leik G-riðils

Read Full Article →

Íranar komu í veg fyrir fyrsta sigur Nýja Sjálands á heimsmeistaramóti í fótbolta karla með því að knýja fram 2:2-jafntefli í leik sem spilaður var í Los Angeles í Bandaríkjunum. Liðin spila í G-riðli mótsins þar sem öll hafa fengið eitt stig að lokinni fyrstu umferð. Nýsjálendingurinn Elijah Just skoraði strax á sjöundu mínútu leiksins og Ramin Rezaeian jafnaði 25 mínútum síðar. Just var aftur að verki á 54. mínútu leiksins, en Adam var ekki lengi í Paradís því Mohammad Mohebbi skoraði jöfnunarmark Írana með skalla eftir fyrirgjöf frá Rezaeian. Hann var valinn maður leiksins. Just er fyrsti Nýsjálendingurinn til að skora fleiri en eitt mark í sama leik á heimsmeistaramóti. Nýsjálendingar mæta Egyptum 21. júní en Íranar keppa við Belga. Belgía og Egyptaland gerðu 1:1 jafntefli í fyrsta leik G-riðilsins fyrr í kvöld. Leik Sádí Arabíu og Úrúgvæ í H-riðli lauk um miðnæturbil og hann fór líka 1:1. Öll liðin í H-riðli eru með eitt stig að lokinni fyrstu umferð líkt og raunin er í G-riðlinum eftir óvænt markalaust jafntefli Spánar og Grænhöfðaeyja í gærdag.

Share this article