Norðmenn leggja allt kapp á að gera Aspmyra, heimavöll Bodø/Glimt, kláran í tæka tíð fyrir útsláttarleikinn gegn Inter Milan í Meistaradeild Evrópu. Elstu menn muna ekki eftir öðrum eins snjóþyngslum og í gær og í dag þurfa starfsmenn að hreinsa 80 tonn af snjó á svæðinu. Um 300 kíló af gervigraskrul hafa safnast saman í fimm metra háum sköflum í kringum völlinn. Norðmenn eru hvergi bangnir og leikurinn mun að öllum líkindum fara fram. Fimm metra háir snjóskaflar Snjóskaflar á svæðinu í kringum völlinn eru orðnir allt að fimm metra háir en Bodø er staðsett í Norður-Noregi. Snjórinn í þetta sinn hefur haft víðtæk áhrif en útsendingarbílar frá sænskum og ítölskum sjónvarpsstöðvum festust á E6-hraðbrautinni. Svíinn Lars Törnquist ræddi við NRK en hann sér um útsendingar frá Meistaradeildinni. Törnquist hefur skóflað snjó síðustu daga. Hann er fastagestur í Bodö og hefur aldrei séð annað eins. „Það er gífurlega mikill snjór hérna. Síðustu daga hafa sennilega fallið á bilinu 30-40 sentímetrar af snjó. Ég hef aldrei séð svona mikinn snjó hérna.“ „Þú verður að gera þitt til að gera hlutina betri,“ sagði hann svo aðspurður um hvort snjóhreinsun væri partur af starfslýsingunni. Norska veðurstofan segir að snjófallið sé ekki óvenjulegt en þó hafi mikill snjór komið á sama tíma. Búist er við um 10 sentímetra snjófalli í dag en léttri vætu þegar leikurinn fer fram klukkan 20:00 á miðvikudagskvöld. Bodö/Glimt Staðsetning : 67,27° norður Fjöldi : Næst stærsta borg norður Noregs, 42.831 manns. Titlar : Fjórir Noregstitlar, allir frá 2020. Tveir bikarmeistaratitlar. Í dag er búist við enn frekari snjókomu en blessunarlega spáir ekki snjó þegar leikurinn fer fram. Hann hefst klukkan 20:00 á miðvikudagskvöld. Í frétt NRK um málið má sjá skaflana í kringum völlinn og snjóþungan. Besti árangur sögunnar Bodö/Glimt hefur náð afar eftirtektarverðum árangri í Evrópukeppni síðustu ár en liðið er að keppa í útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu í fyrsta sinn. Snjórinn hefur oft áður verið til trafala en þó aldrei jafn mikið og nú. Liðið er það fyrsta sem leikur norðan við heimskautahringinn sem hefur tekið þátt í Meistaradeild Evrópu. Þeir gulklæddu fóru alla leið í undanúrslit Evrópudeildarinnar á síðasta tímabili og hafa unnið Manchester City og Atlético Madrid í síðustu leikjum í Meistaradeildinni. Bodö/Glimt og Inter mætast heima og heiman í umspili um að komast í 16-liða úrslit. 300 kíló af kurli Fastlega er þó búist við að leikurinn fari fram. En alls konar vandræði fylgja hreinsuninni. Vallarstarfsmenn þurfa að huga sérstaklega að því að gervigraskurli sem þyrlast upp með snjóhreinsunni verði fargað á réttan máta. Alls hafa safnast á bilinu 200 til 300 kíló af kurli í snjónum kringum völlinn.