Þá er HM í fótbolta lokið. Góð frammistaða norska liðsins vakti mikla athygli á mótinu. Kannski má að einhverju leyti þakka það mataræðinu hversu vel liðið spilaði og hve langt það komst. Fréttir hafa nefnilega borist af því að norska landsliðið í fótbolta hafi tekið með sér hálft tonn af sjávarfangi til Bandaríkjanna þar sem Norðmenn spiluðu sína leiki. Samkvæmt fjölmiðlavaktinni Meltwater hefur frétt um þennan óvanalega farangur getið af sér 120 umfjallanir í fjölmiðlum, þar á meðal í New York Times, CNN, The Korea Times og The Sun. Bestu knattspyrnumenn Noregs eru alþjóðlegar ofurstjörnur. Þeir eru líka, eins og flestir íþróttamenn, mjög meðvitaðir um hvað þeir láta ofan í sig og velja fæði sem þeir þekkja og treysta. Það sem liðsstjórn norska liðsins hafði með sér frá Noregi til Bandaríkjanna var meðal annars lax, silungur, kóngakrabbi og humar. Norðmenn hafa sýnt það í gegnum tíðina að þeir eru afar slyngir í markaðsmálum og markaðssetningu sjávarafurða. Þó að það hafi ekki blasað við almennum áhorfendum á leikjum liðsins hafa þeir gjörnýtt tækifærið sem bauðst á þessum risastóra vettvangi sem HM er til að minna milljónir manna á ágæti norskra sjávarafurða. Lúðumáltíð ásamt vöfflum og brúnum osti í eftirrétt. „Mataræðið skiptir afreksíþróttamenn gríðarlega miklu máli. Þegar norska landsliðið ákveður að taka með sér sjávarfang frá Noregi vekur það mikinn áhuga. Á blaðamannafundinum fyrir leik Noregs gegn Frakklandi spurði einn blaðamannanna hvort norska landsliðið hefði nægan fisk til að endast fram að úrslitaleiknum 19. júlí,“ segir Camilla Beck hjá Norska sjávarafurðaráðinu. Laxinn í uppáhaldi Þrír norskir matreiðslumeistarar voru með í för og sáu um að matreiða að minnsta kosti einn sjávarrétt á hverjum degi. Einn þeirra, Aron Espeland, fór ekki varhluta af fjölmiðlaathyglinni sem þetta vakti meðan á mótinu stóð. „Stærstu fjölmiðlaveldi heims hafa sett sig í samband við mig, eins og CNN og The New York Times. Áhuginn á norskum sjávarafurðum er gríðarlegur. Þetta er dálítið veruleikafirrt en fyrst og fremst ofboðslega gaman,“ segir Espeland. Hann segir fjölmiðla hafa verið forvitna um hvers vegna norska liðið tók svo mikið af matvælum með sér á mótið. Allt hafi þetta verið norsk matvæli eins og allt sjávarfangið en líka brúnn ostur og norskar vöfflur sem voru bornar fram á blaðamannafundum. Hvað sjávarfangið varðaði sýndu fjölmiðlarnir norska laxinum hvað mestan áhuga. Leikmenn norska liðsins og starfslið voru í sjöunda himni með matinn og einn réttur skaraði fram úr öðrum í vinsældum; lax tataki með edikssósu úr brúnum sykri, hvítri sojasósu, yuzu sítrusávexti og hunangi. Norska liðið var bróðurpartinn úr heilum mánuði í Bandaríkjunum og voru fjórar máltíðir bornar fram á degi hverjum. Auk hálfs tonns af sjávarfangi sem liðið hafði með sér fékk það aukabirgðir sendar frá Noregi.