Vísitala íbúðaverðs lækkaði um 0,44% á milli apríl og maí, samkvæmt nýbirtum tölum HMS . Undanfarna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 2,16% og hefur því lækkað um 2,81% að raunvirði undanfarið ár. „Þetta er tíundi mánuðurinn í röð sem íbúðaverð stendur í stað eða lækkar að raunvirði á ársgrundvelli,“ segir í tilkynningu á vef HMS. Bent er á að vísitala launa hækkaði um 6,4 prósent á milli aprílmánaða 2025 og 2026 sem er talsvert umfram hækkun íbúðaverðs á tímabilinu sem mældist 2,15 prósent. „Íbúðaverð hefur raunar hækkað minna en laun frá því á haustmánuðum ársins 2024, en síðan þá hefur íbúðaverð sem hlutfall af launum farið lækkandi og er nú rúmlega 8 prósent lægra en það var í ágúst 2024.“ Á meðfylgjandi mynd frá HMS myndinni má sjá tólf mánaða breytingu á íbúðaverði sem hlutfalli af launum. Í apríl hafði hlutfallið lækkað um 4% á ársgrundvelli. HMS gefur út fjórar undirvísitölur yfir verð á fjölbýli og sérbýli á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og landsbyggðinni hins vegar. Fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,27% milli mánaða og hefur nú hækkað um 2,48% á síðustu tólf mánuðum. Í maí lækkaði sérbýli á höfuðborgarsvæðinu um 1,91% milli mánaða og hefur nú hækkað um 2,55% á síðustu tólf mánuðum. Undirvísitala yfir fjölbýli á landsbyggðinni hækkaði um 0,34% milli mánaða og hefur nú lækkað um 0,25% á síðustu tólf mánuðum. Sérbýli á landsbyggðinni hækkaði um 0,43% á milli mánaða og hefur nú hækkað um 2% síðasta árið.