Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Næst­minnsta 12 mánaða hækkun íbúða­verðs frá 2011

Read Full Article →

Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09% á milli maí og júní, samkvæmt nýbirtum tölum HMS. Undanfarna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 1,8% og hefur því lækkað um 3,25% að raunvirði undanfarið ár. „Ef frá er talinn júlímánuður árið 2023 hefur vísitala íbúðaverðs ekki hækkað minna á ársgrundvelli síðan í byrjun árs 2011,“ segir í tilkynningu á vef HMS. Stofnunin bendir á að sé litið til raunverðsþróunar á ársgrundvelli hafi íbúðaverð nú lækkað í ellefu mánuði í röð. Íbúðaverð lækkaði meira að raunvirði á ársgrundvelli um nokkurt skeið frá vormánuðum ársins 2023 fram undir byrjun árs 2024, eða um allt að 6%. HMS rijfar upp í því samhengi að á þeim tíma voru miklar vaxtahækkanir farnar að hægja verulega á verðhækkunum á markaðnum áður en Grindavíkuráhrifin tóku við. „Þar áður hafði íbúðaverð þó ekki lækkað meira og lengur að raunvirði síðan á eftirhrunsárunum þegar lækkunarhrinan varði í rúm þrjú ár og íbúðaverð lækkaði um allt að 20% að raunvirði á einu ári.“ Mynd tekin úr mánaðarskýrslu HMS. HMS gefur út fjórar undirvísitölur yfir verð á fjölbýli og sérbýli á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og landsbyggðinni hins vegar. Fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 1,2% milli mánaða og hefur nú hækkað um 0,9% á síðustu tólf mánuðum. Í júní hækkaði sérbýli á höfuðborgarsvæðinu um 1,2% milli mánaða og hefur nú hækkað um 1,5% á síðustu tólf mánuðum. Undirvísitala yfir fjölbýli á landsbyggðinni lækkaði um 1,5% milli mánaða og hefur nú hækkað um 2,1% á síðustu tólf mánuðum. Sérbýli á landsbyggðinni hækkaði um 1,2% á milli mánaða og hefur nú hækkað um 4,2% síðasta árið.

Share this article