Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Raunverð lækkað um 3%

Read Full Article →

Vísitala íbúðaverðs mældist stóð í stað á milli mars og apríl, samkvæmt nýbirtum tölum HMS . Undanfarna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 2,15% á sama tíma og hefur því lækkað um 2,94% að raunvirði undanfarið ár. „Íbúðaverð hefur staðið í stað eða lækkað að raunvirði á ársgrundvelli undanfarna 10 mánuði,“ segir í frétt á vef HMS. Stofnunin bendir á að greiningardeildir Arion banka og Landsbankans spái áframhaldandi raunverðslækkunum íbúðaverðs á þessu ári og því næsta í nýjum þjóðhagsspám fram til ársins 2028 sem gefnar voru út í síðari hluta aprílmánaðar. Báðar greiningardeildir geri hins vegar ráð fyrir að íbúðaverð taki að hækka að raunvirði að nýju á árinu 2028. Íbúðaverð lækkaði einnig að raunvirði á árinu 2023 í kjölfar umfangsmikilla vaxtahækkana Seðlabankans. HMS bendir á að þá lækkaði íbúðaverð að raunvirði á ársgrundvelli í þrettán mánuði í röð, en 12 mánaða raunverðslækkunin mældist mest 6,42% í júlí 2023. Mynd tekin úr tilkynningu HMS. HMS gefur út fjórar undirvísitölur yfir verð á fjölbýli og sérbýli á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og landsbyggðinni hins vegar. Fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,27% milli mánaða og hefur nú hækkað um 1,9% á síðustu tólf mánuðum. Í apríl hækkaði sérbýli á höfuðborgarsvæðinu um 0,17% milli mánaða og hefur nú hækkað um 2,3% á síðustu tólf mánuðum. Undirvísitala yfir fjölbýli á landsbyggðinni stóð í stað milli mánaða og hefur nú hækkað um 0,6% á síðustu tólf mánuðum. Sérbýli á landsbyggðinni hækkaði um 0,52% á milli mánaða og hefur nú hækkað um 2,9% síðasta árið.

Share this article