Seðlabanki Japans hækkaði stýrivexti í dag úr 0,75% í 1% og hafa vextir þar í landi ekki verið hærri síðan 1995. Á vef BBC segir að ákvörðunin hafi komið í kjölfar verðhækkana í tengslum við stríðið í Miðausturlöndum og þrýstings til að hemja verðlag. Heildsöluverð í Japan hækkaði um meira en 6% í maí miðað við sama tímabil í fyrra og hefur sú verðhækkun ekki verið meiri í þrjú ár. Þrátt fyrir verðhækkanir var verðbólga í Japan 1,4% í apríl og er enn undir 2% markmiðum seðlabankans. Seðlabanki Japans byrjaði í fyrsta sinn í 17 ár að hækka vexti í mars 2024 en vextir í Japan eru þó mun lægri í samanburði við önnur stór hagkerfi. Vextir í Bandaríkjunum og Bretlandi eru til að mynda yfir 3% og ákvað Seðlabanki Ástralíu í dag að halda vöxtum óbreyttum í 4,35%. Sjá einnig Hækka stýrivexti í Japan Þetta er jafnframt í annað sinn sem japanski seðlabankinn hækkar stýrivexti undir forystu nýjasta forsætisráðherra Japans, Sanae Takaichi. Hún hefur áður gagnrýnt vaxtahækkanir en hefur þó ekki opinberlega mótmælt síðustu hækkunum seðlabankans.