Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Jenið rauk upp er fjár­festar veðjuðu á vaxta­hækkanir

Read Full Article →

Japanska jenið styrktist veru­lega í gær þegar fjár­festar juku veðmál sín um að Japans­banki myndi hækka vexti hraðar en áður var talið. Jenið styrktist um 2,1% gagn­vart Bandaríkja­dal og fór í um 155,4 jen á dal. Daginn áður hafði gjald­miðillinn styrkst um 0,9%. Hreyfingin náði einnig til evru og breska pundsins. Financial Times segir fjár­festa fylgjast náið með bæði mögu­legum inn­gripum japanskra stjórn­valda á gjald­eyris­markaði og merkjum um að vaxta­hækkanir geti orðið tíðari eða stærri á næstu mánuðum. Jenið hafði ný­lega veikst aftur í um 160 jen á dal eftir að hafa styrkst í um 155 í kjölfar sjald­gæfra samræmdra inn­gripa japanskra og bandarískra stjórn­valda í júlí og ágúst. Sumir sér­fræðingar telja því mögu­legt að japanska fjár­málaráðu­neytið hafi ákveðið að verja ákveðin mörk nálægt 160 jenum á dal. Aðrir telja hins vegar lík­legra að markaðurinn sé fyrst og fremst að bregðast við breyttum væntingum um peninga­stefnu. Hajime Takata, einn meðlima peninga­stefnu­nefndar Japans­banka, sagði í vikunni að árið 2026 markaði upp­haf nýs áfanga þar sem vaxta­hækkanir yrðu ekki lengur fram­kvæmdar á föstu bili heldur með sveigjan­legri hætti eftir aðstæðum. Kazuo Ueda seðla­banka­stjóri sagði jafn­framt að vaxta­mál yrðu rædd á öllum næstu fundum bankans, sem markaðurinn túlkaði sem vís­bendingu um að vaxta­hækkanir gætu komið hvenær sem er. Skipta­markaður verð­leggur nú um 25% líkur á því að Japans­banki hækki vexti um 0,25 pró­sentu­stig bæði í septem­ber og október. Styrking jensins kom einnig sam­hliða al­mennri veikingu Bandaríkja­dals eftir að hátt­settur seðla­banka­maður í Bandaríkjunum sagðist hallast að óbreyttum vöxtum þar. Þróunin á japanska skulda­bréfa­markaðnum hefur jafn­framt vakið at­hygli. Japan seldi 30 ára ríkis­skulda­bréf með meðalávöxtun rétt yfir 4% og gekk út­boðið ágæt­lega, þótt eftir­spurn hafi verið lítil­lega minni en í fyrra út­boði. Ávöxtunar­krafa tíu ára japanskra ríkis­skulda­bréfa fór fyrr í vikunni í 3%, það hæsta frá árinu 1996, en hefur síðan lækkað lítil­lega aftur. Sér­fræðingar telja að væntingar um hraðari vaxta­hækkanir og mögu­lega aukna fjár­festingu stórra japanskra stofnana­fjár­festa innan­lands geti stutt við jenið áfram. Financial Times bendir sér­stak­lega á mögu­lega breytingu á fjár­festingar­stefnu GPIF, japanska líf­eyris­sjóðsins, sem gæti aukið vægi inn­lendra eigna. Slík breyting gæti kallað á að meira fjár­magn færist aftur heim til Japans og þannig styrkt gjald­miðilinn enn frekar.

Share this article